Hvíti tígurinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 301 | 990 kr. | ||
Kilja | 2010 | 299 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 301 | 990 kr. | ||
Kilja | 2010 | 299 | 990 kr. |
Um bókina
Balram Halwai er frumkvöðull, þjónn, hugsuður og morðingi – í senn siðblint ljúfmenni og auðmjúkur fantur. Hann brýst úr fjötrum þorpsins sem ól hann og fjölskyldunnar sem kúgaði hann til þess eins að lenda undir hælum annarra þrælahaldara í stórborginni. En Balram er frábrugðinn hundruðum milljóna undirokaðra landa sinna: hann velur sér nýtt líf, þar sem hann er sjálfur sá sem mútar, kúgar og græðir.
Hvíti tígurinn er snilldarlega skrifuð saga um napran veruleika Indlands, saga um spillingu, örbirgð, kúgun, stéttaskiptingu og viðurstyggð sem viðgengst jafnt meðal fátækra og ríkra. Uppreisnarmaðurinn Balram játar opinskátt bresti sína og brot í háðskri frásögn sem um leið er bæði heillandi og sláandi.
Aravind Adiga hlaut hin heimsþekktu Booker-verðlaun 2008 fyrir bókina sem hefur komið út víða um heim við miklar vinsældir.
Ísak Harðarson þýddi.
4 umsagnir um Hvíti tígurinn
Kristrun Hauksdottir –
„Sagan er gráglettin og gamanið oft verulega kaldranalegt. Bókin er glæsilega skrifuð.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Lipur þýðing Ísaks Harðarsonar skilar beittri, pólitískri, frumlegri og bráðskemmtilegri ádeilu á Indland númtímans – og alls heimsins – til íslenskra lesenda. Hvíti tígurinn er frábær skáldsaga.“
Helgi Hrafn Guðmundsson / DV
Kristrun Hauksdottir –
„Hér er indverskt samfélag (tja, eiginlega mannkynið í heild) tætt sundur í nístandi og áleitnu háði, þó vissulega sé hægt að gleyma sér og lesa bókina sem hreinræktaða gráa gamansögu … klárlega ein af bókum ársins.“
Hrafn Jökulsson / Viðskiptablaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Þetta er æsileg lesning, krassandi og kaldhæðin, og ágætt mótefni fyrir þá sem hafa rómantíska mynd af hinu dularfulla Indlandi eða þá sem trúa að það sé frábært lýðræðisríki … Söguhetjan, Balram, er kannski samviskulaus þrjótur, en það er ekki hægt að hafa annað en samúð með viðleitni hans til að brjótast út úr þessum hryllingi, úr myrkrinu í ljósið.“
Egill Helgason / Silfur Egils