Konur og vígamenn: Staða kynjanna á Íslandi á 12. og 13. öld
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1995 | 231 | 1.690 kr. |
Konur og vígamenn: Staða kynjanna á Íslandi á 12. og 13. öld
1.690 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1995 | 231 | 1.690 kr. |
Um bókina
Árið 1242 var settur gerðadómur í málum Þórðar kakala og Árnessinga, fylgismanna Gissurar Þorvaldssonar. Samið var um að Skálholtsbiskup og Steinvör Sighvatsdóttir á Keldum, systir Þórðar, gerðu um málin. En það sem þau yrðu ekki sátt um skyldi Steinvör gera um ein.
Þessi frásögn Sturlunga sögu og fjölmargar aðrar, ásamt ákvæðum Grágásar og fleiri heimildum, er efniviður Agnesar S. Arnórsdóttur í bókinni Konur og vígamenn. Hún kannar hvaða áhrif konur höfðu á gang mála á Íslandi á síðustu öldum þjóðveldisins og hver staða kvenna var í ætt, hjónabandi, frillusambandi, stjórnmálaátökum og ófriði. Óhætt er að fullyrða að miðaldaheimildir okkar reynast auðugri af efni um konur en marga mun hafa grunað.
Bókin, sem unnin er upp úr kandídatsritgerð Agnesar við Björgvinjarháskóla, er gefin út í ritröðinni Sagnfræðirannsóknir.