Kossar & ólífur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2007 | - | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2007 | - | 990 kr. |
Um bókina
Í bókinni Kossar & ólífur eftir Jónínu Leósdóttur fylgjum við unglingsstúlkunni Önnu til Brighton á Englandi, þar sem hún vinnur sumarlangt á hóteli. Þetta sumar kynnist Anna ýmsu sem kemur henni á óvart – bæði framandi aðstæðum og spennandi fólki, en ekki síður nýjum tilfinningum sem bærast með henni sjálfri.
Anna skildi ekki hvað krökkum fannst svona spennandi við kossa. Hún hafði kysst þrjá stráka og fannst það ekkert sérstakt. Kannski var fyrsti kossinn aldrei neitt merkilegur þótt fáir vildu viðurkenna það. Anna hafði að minnsta kosti orðið svo stressuð þegar hún áttaði sig á að þessi tímamótaviðburður var í vændum að hún var við það að kasta upp…
Í Kossum & ólífum er skrifað um ýmis viðkvæm mál af fimi og nærgætni. Sagan fjallar um það sem getur fylgt því að stíga inn í heim hinna fullorðnu og því á hún erindi við unglinga á öllum aldri.
4 umsagnir um Kossar & ólífur
Nanna Rögnvaldardóttir –
“Það er kærkomið að fá bók eins og Kossa og ólífur í hendurnar því að ekki er nærri því nóg skrifað á íslensku um raunverulega unglinga. … stíllinn þarf líka að vera aðgengilegur eins og raunin er um stíl Jónínu í þessari ágætu bók.”
Hrund Ólafsdóttir / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Jónína Leósdóttir kann þá list að halda lesandanum föngnum. … Góð og skemmtileg bók þar sem höfundur hikar ekki við að koma inn á viðkvæm mál en á nærgætnislegan hátt. Snilldarbók.“
Vikan
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þetta er vel skrifuð bók og bæði skemmtileg og holl lesning.“
Silja Aðalsteinsdóttir / tmm.is
Nanna Rögnvaldardóttir –
“Unglingabók sem stingur í stúf við hinar. Spennandi lestur.”
Gerður Kristný / Mannamál / Stöð 2