Lærlingur Djöfulsins

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 1.690 kr.
spinner

Lærlingur Djöfulsins

1.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 1.690 kr.
spinner

Um bókina

„Þú ert eina von Helvítis. Þú, Filip Engils,“ Fjandinn lyfti fingri og benti á hjarta Filips, sem sló ótt og títt, „átt að verða eftirmaður minn.“ 
„Ég?“ Filip leit niður eftir sjálfum sér, eins og til að fullvissa sig um að það væri hann sem Fjandinn benti á. „Viltu að ég verði …“
„Já, drengur minn! Lúsífer II! Hljómar það ekki vel?“ 
Filip er ósköp venjulegur strákur. Reyndar er hann ekkert svo venjulegur því að hann er alltaf kominn aðeins á undan í skólabókunum sínum, hann vaskar alltaf upp og fer út með ruslið þegar mamma hans biður hann um það og hann lýgur aldrei. Aldrei. Ekki einu sinni til að hylma yfir með eina vini sínum. En þessa vikuna er það hann sem lendir í klónum á versta hrotta skólans. Í átökunum lendir Filip undir bíl og deyr. 
Og hvar lendir hann, þetta gæðablóð? Jú, hann lendir nefnilega í Helvíti, hjá þeim svarta sjálfum.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning