Leðurblakan: Harry Hole #1

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 394 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2015 490 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.490 kr. Setja í körfu

Leðurblakan: Harry Hole #1

490 kr.3.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 394 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2015 490 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.490 kr. Setja í körfu

Um bókina

Lík norskrar konu finnst undir sjávarhömrum í Ástralíu og allt bendir til að hún hafi verið myrt. Norsk yfirvöld senda ungan lögreglumann þvert yfir hnöttinn til að vera lögreglunni í Sydney innan handar við rannsókn málsins. Sá heitir Harry Hole. Hann velst ekki til fararinnar vegna þess að hann sé svo hátt skrifaður á heimaslóðum, heldur glímir hann þvert á móti við áfengisvanda og hefur nýlega orðið valdur að hræðilegu slysi í starfi. Hann á að láta sig hverfa um stund, fylgjast með, gera eins og honum er sagt. En Harry er síður en svo eiginlegt að halda sig á hliðarlínunni og fyrr en varir á morðrannsóknin hug hans allan. Sem og Birgitta, vinkona hinnar látnu.

Leðurblakan er fyrsta bókin sem Jo Nesbø skrifaði um Harry Hole og hún sló eftirminnilega í gegn þegar hún kom út árið 1997. Bókin var valin besta norska glæpasaga ársins og færði höfundinum Norrænu glæpasagnaverðlaunin. Jo Nesbø er í hópi vinsælustu glæpasagnahöfunda heims.

Leðurblakan er sjöunda bókin um Harry Hole sem kemur út á íslensku og veitir lesandanum aukna innsýn í ástæður þess að Harry Hole er þessi vandræðagripur sem hann er.

Ævar Örn Jósepsson þýddi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 14 klukkustundir og 12 mínútur að lengd. Orri Huginn Ágústsson les.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning