Litagleði

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 160 3.990 kr.
spinner

Litagleði

3.990 kr.

Litagleði
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 160 3.990 kr.
spinner

Um bókina

Litagleði er fræðirit um litafræði eftir Helgu Jóhannesdóttur litafræðing og kennara í fata- og textílgreinum við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Bókin gagnast jafnt í hönnun sem listgreinum og sem almennar upplýsingar fyrir alla þá sem vilja dýpka skilning sinn á litasamsetningum. Litafræði er nauðsynleg þeim sem fást við ljósmyndun, myndlist, mynsturgerð, fatasaum og fleira mætti telja.

Bók Helgu byggir meðal annars á litafræðum svissneska expressíonistans Johannesar Itten (1888-1967) sem setti fram andstæðukenningu um liti. Fjallað er um samsetningu lita, frumliti, hinn tólfskipta litahring og hvernig lesa beri í liti. Þá er sérstakur kafli helgaður því hvernig unnið er með liti og annar hvernig fá má innblástur í því er varðar liti og litaval. Aftast í ritinu eru svo yfirlitslistar er varða fólk, hugtök og heimildir.

Litagleði
er ferningslaga harðspjalda bók, liðlega 200 mm á hvern kant. Fjórlitaprentun á þykkan og vandaðan pappír. Þá er bókin saumuð með aðferð sem miðar sérstaklega að því að hún geti legið flöt og opin á borði sem hentar sérstaklega þar sem hún er notuð við kennslu og leiðsögn við vinnu.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning