Litla gula hænan

Útgefandi: Sæmundur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 160 3.690 kr.
spinner

Litla gula hænan

Útgefandi : Sæmundur

3.690 kr.

Litla gula hænan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 160 3.690 kr.
spinner

Um bókina

Litla gula hænan í íslenskum búningi Steingríms Arasonar kennara og rithöfundar er frægari en aðrar dæmisögur hérlendis þótt uppruni hennar sé raunar rakinn vestur um haf.

Fyrir býsna marga hefur þessi saga verið með fyrstu textum sem þeim tókst að ráða í af eigin rammleik, en hún er ekki síður eftirminnileg fyrir sinn tæra og einfaldan réttlætisboðskap sem oft er vitnað til og stjórnmálahreyfingar bæði til vinstri og hægri hafa viljað eigna sér.

Auk Litlu gulu hænunnar eru í bókinni fleiri kunnuglegar sögur, svo sem um sætabrauðsdrenginn sprettharða, Unga litla og um pönnuköku sem fór að heiman.

Iðunn Arna Björgvinsdóttir endurgerði myndir úr fyrstu útgáfu bókarinnar frá 1930.

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virka daga 10-18
Laugardaga 11-17
Sunnudaga 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning