Máltaka á stríðstímum

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 68 3.790 kr.
spinner

Máltaka á stríðstímum

3.790 kr.

Maltaka-kapa-2
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 68 3.790 kr.
spinner

Um bókina

„Máltaka á stríðstímum er áhrifamikið verk, brýnt og einstakt í sinni röð. Það er frásögn manneskju sem fylgist með stríði í heimalandi sínu úr fjarlægð. Hennar eigin þjóð – Rússar – hervæðist og ræðst inn í Úkraínu. Andstaða höfundar við stríðsreksturinn vekur margslungnar tilfinningar og spurningar sem glímt er við í bókinni. Þrátt fyrir átakanleg efnistök einkennist framsetning af lipurð og djúphygli. Skírskotanir í íslenskan raunveruleika færa atburði stríðs í nýtt samhengi og draga fram sláandi andstæður. Mannskilningur höfundar nær þvert yfir þjóðerni, búsetu, reynslu og bakgrunn. Þá er verkið djúppersónulegt þrátt fyrir að inntak þess séu umfangsmiklar hörmungar á alþjóðavísu enda er ástarsögu, minningum og endurliti fléttað saman við af listfengi.“ Úr umsögn dómnefndar Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar

Natasha S. er rithöfundur og þýðandi íslenskra bókmennta yfir á rússnensku. Árið 2021 ritstýrði hún bókinni Pólífónía af erlendum uppruna, ljóðasafni innflytjenda
á Íslandi. Hún hefur jafnframt vakið athygli fyrir pistla og hugvekjur. Máltaka á stríðstímum er fyrsta bók hennar og fyrir hana hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2022.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Máltaka á stríðstímum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
3.890 kr.
3.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
5.890 kr.
2.690 kr.
1.790 kr.
1.290 kr.

INNskráning

Nýskráning