Næstum fullorðin

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 404 2.590 kr.
spinner

Næstum fullorðin

2.590 kr.

Næstum fullorðin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 404 2.590 kr.
spinner

Um bókina

Esmeralda er frá Púertó Ríkó og er nýflutt til New York. Líf hennar utan veggja heimilisins er kærkomin hvíld frá baslinu í tveggja herbergja íbúð í Brooklyn, kröfuharðri móður og ört stækkandi systkinahópi. Töfrar og tækifæri borgarinnar heilla og Esmeröldu dreymir um að gera nokkuð sem enginn í fjölskyldu hennar hefur gert áður – að mennta sig.

Hún fær inngöngu í virtan sviðslistaskóla á Manhattan, leikur Kleópötru í leiksýningum, dansar salsa um nætur og eygir von um annað líf, frægð og frama. Esmeralda aðlagast nýju umhverfi fljótt en krafan um að hún sé trú uppruna sínum er sterk og togstreitan eykst. Hún berst fyrir sjálfstæði sínu og að losna undan verndarvæng móður sinnar sem sér hættur á hverju götuhorni og í augnatilliti hvers karlmanns.

Esmeralda Santiago deilir hér með okkur þroskasögu sinni sem veitir einstaka innsýn í líf ungrar konu í New York sjöunda áratugarins. Leifrandi frásagnargáfa Esmeröldu heldur lesandanum hugföngnum. Ljóslifandi minningabók sem erfitt er að leggja frá sér og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.

Herdís Magnea Hübner íslenskaði.

Tengdar bækur

2.890 kr.

INNskráning

Nýskráning