Neyðarútgangur – ljóðaúrval

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 139 3.290 kr.
spinner

Neyðarútgangur – ljóðaúrval

3.290 kr.

Neyðarútgangur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 139 3.290 kr.
spinner

Um bókina

Neyðarútgangur er úrval ljóða eftir pólsku skáldkonuna Ewu Lipsku. Í bókinni er valið efni úr öllum útgefnum ljóðabókum skáldsins sem er meðal þekktustu samtímaskálda Pólverja.

Olga Holwnia valdi efnið og ritstýrði verkinu, en þýðendur eru: Áslaug Agnarsdóttir, Bragi Ólafsson, Magnús Sigurðsson, Olga Holownia og Óskar Árni Óskarsson.

Ewa Lipska fæddist árið 1945 í Kraká í Póllandi og sendi frá sér fyrstu ljóðbók sína árið 1967. Sú bók vakti mikla athygli og síðan hafa komið nær tveir tugir ljóðabóka út eftir hana. Þótt vissulega megi telja að Ewa Lipska tilheyri nýbylgjuskáldunum í Póllandi sem komu fram á sjónarsviðið undir lok sjöunda áratugar liðinnar aldar hefur hún sjálf alla tíð lagt á það áherslu að hún sé hvorki bundin straumum né stefnum.

Haustið 2013 kom Ewa Lipska til Íslands á vegum Bókmenntahátíðar í Reykjavík og ljóðaverkefnisins ORT.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning