Nonni

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2012 526 990 kr.
spinner

Nonni

990 kr.

Nonni
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2012 526 990 kr.
spinner

Um bókina

Ævi Jóns Sveinssonar var einstök – andstæðurnar í lífi hans með ólíkindum. Dagbækur föður hans og sendibréf móður hans lýsa á sláandi hátt basli, harðræði og veikindum bernskuáranna en jafnframt löngun til að koma þeim börnum sem lifðu til manns. Þess vegna tekur móðir Jóns boði um senda hann utan til mennta aðeins 12 ára gamlan.

Jón Sveinsson gekk inn í samfélag sem var eins fjarri íslenskum veruleika og hugsast gat. Hann gerðist kaþólskur prestur og kennari og var sendur víða til starfa. Iðulega átti hann í innri togstreitu sem birtist vel í dagbókum hans og bréfum. Sagnamaðurinn var þó aldrei langt undan og löngun að hverfa aftur til bernskuáranna varð að miklu höfundarverki. Bækurnar um Nonna urðu víðfrægar og komu út um allan heim.

Jón lést í Þýskalandi árið 1944. Auðmjúkur prestur, kennari, sagnamaður, fyrirlesari, tónlistarmaður, heimsborgari. Pater Jón Sveinsson lifði alla ævi í heimi bernskunnar þrátt fyrir að vera einn víðförlasti og þekktasti Íslendingur síns tíma.

INNskráning

Nýskráning