Norræn sakamál 2007

Útgefandi: Lindhard
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 1.990 kr. Setja í körfu

Norræn sakamál 2007

Útgefandi : Lindhard

1.990 kr.

Norræn Sakamál 2007
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 1.990 kr. Setja í körfu

Um bókina

Þetta er 7. bókin í ritröðinni Norræn Sakamál. Þessi bók er sérstök að því leyti að nær helmingur hennar eru frásagnir af íslenskum sakamálum. Og þau eru öll sérstök og áhugaverð. Sum þeirra vöktu sérstakan áhuga almennings og voru mikið á forsíðum dagblaða meðan þau voru í rannsókn. Þau höfðu líka áhrif á íslenskt samfélag og einstöku áhrifa þeirra gætir enn í dag, mörgum árum síðar.

Þar má nefna málverkafölsunarmálið en afleiðingar þess hafa enn áhrif á verð íslenskra málvera á uppboðsmörkuðum að sögn kunnugra. Frásögnin um slysið á Viðeyjarsundi er ógleymanleg og eftirmálar þess eru enn á dagskrá fjölmiðla. Líkfundarmálið á Neskaupstað var forsíðuefni dagblaða í margar vikur, það komst einnig á síður erlendra blaða og enn er mjög áhugavert að lesa um það sem raunverulega gerðist.

Sveðjumálið í Garðabæ er frásögn af máli sem olli skjálfta í heilu bæjarfélagi og áhrif þess finnast enn í dag. Frásögnin um kynferðisbrot er nokkuð sem allir ættu að lesa því hún er ekki aðeins frásögn af sérstökum og áhugaverðum málum, heldur líka lýsing á þessum viðkvæma og erfiða málaflokki sem allir ættu að kynnast nánar.

Hundurinn leysti málið er hugnæm frásögn af því hvað fíkniefnahundur er á margan hátt hæfileikaríkari en við sjálfir. Sagan allt í lagi þið náðuð mér lýsir því vel að við erum ekki lengur afskekktir heldur í miðri hringiðu afbrota heimsins þótt við gerum okkur það ekki alltaf ljóst.

Auk þessara íslensku frásagna eru greinar um mál frá hinum Norðurlöndunum. Þær eru margar mjög sérstakar og þess eðlis að enginn ætti að láta þær fram hjá sér fara. Þær eru líka spennandi og margt hægt af þeim að læra. Það er tvímælalaust að frásagnirnar í þessari bók eru bæði áhugaverðar og lærdómsríkar og enginn ætti að láta þær ólesnar.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 12 klukkustundir pg 11 mínútur að lengd. Hjálmar Hjálmarsson les.

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning