Nú – nú, óskráð saga: hljóðbók

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Geisladiskur 2018 Mp3 2.590 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2018 App 2.690 kr. Setja í körfu

Nú – nú, óskráð saga: hljóðbók

2.590 kr.2.690 kr.

Nú - nú, óskráð saga: hljóðbók
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Geisladiskur 2018 Mp3 2.590 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2018 App 2.690 kr. Setja í körfu

Um bókina

Veturinn 1969-70 voru á dagskrá Ríkisútvarpsins þættir sem hétu Óskráð saga. Þar flutti Steinþór Þórðarson á Hala í Suðursveit minningar sínar og mælti þær af munni fram. Þættirnir voru alls 25 og tæpar 13 klst. að lengd.

Steinþór var bróðir Þórbergs rithöfundar eins og kunnugt er. Stefán Jónsson, einn af bestu útvarpsmönnum liðinnar aldar, sá um að búa frásagnirnar til flutnings. Við sem hlustuðum á frásagnir Steinþórs munum þær í hillingum, svo vel sagði hann frá og orðfærið var svo sérstakt að unun var á að hlýða, enda urðu þættirnir fádæma vinsælir. Stefáni Jónssyni bregður öðru hverju fyrir sem hlustanda og einnig spyrjanda og maður skynjar að þar hafi Steinþór haft góðan áheyranda.

Að frumkvæði Þórbergsseturs og með góðfúslegu leyfi Ríkisútvarpsins koma þessir útvarpsþættir nú út á hljóðbók. Áður voru frásagnirnar gefnar út orðréttar í bókinni Nú – Nú, bókin sem aldrei var skrifuð (1970). Frásagnir Steinþórs eru ómetanleg heimild um samtíma hans og lifandi sagnahefð. Stefán ritaði formála að prentuðu bókinni og fylgir hann með þessari hljóðbók í lestri Hjörleifs sonar hans.

ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er um 13 klukkustundir í hlustun. Höfundur les.

INNskráning

Nýskráning