Ódáðahraun

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 3.100 kr.
spinner

Ódáðahraun

3.100 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 3.100 kr.
spinner

Um bókina

Ódáðahraun er áttunda skáldsaga Stefáns Mána en síðasta saga hans, Skipið, varð ein af metsölubókum ársins 2006. Hér leiðir hann saman undirheimana og viðskiptalífið á eftirminnilegan hátt í kraftmikilli spennusögu beint úr íslenskum veruleika.

Óðinn R. Elsuson, sem lesendur kynntust aðeins í Skipinu, er harðsvíraður glæpamaður sem einn daginn situr uppi með dularfullt óskilabréf. Bréfið opnar honum dyr inn í heim viðskipta og hlutabréfakaupa og fyrr en varir er undirheimakóngurinn komin í stríð við helstu auðjöfra landsins. Óðinn er síðasta íslenska hálftröllið, heljarmenni sem vekur í senn ótta og aðdáun og vílar ekkert fyrir sér þegar peningar og völd eru annars vegar.

Þekktur hagfræðingur sagði eitt sinn: „Behind every successful business there is a great crime.“ Í núverandi efnahagsróti veltir maður því óneitanlega fyrir sér hvort eitthvað sé til í því, eins fjarstæðukennd og sú hugmynd var fyrir nokkrum mánuðum síðan. Þessi spurning býr í sífellu að baki texta Ódáðahrauns, bókar sem fléttar saman kröftugt ímyndunarafl Stefáns Mána og ótrúlegar en dagsannar sögur úr íslensku viðskiptalífi frá þeim tíma sem það stóð sem hæst.

Ódáðahraun er grafskrift íslenska hlutabréfaævintýrisins: Harðsoðin spennu- og örlagasaga sem heldur lesandanum í heljargreipum frá upphafi til enda.

 

INNskráning

Nýskráning