Óminni

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 x 5.190 kr.
spinner

Óminni

5.190 kr.

Óminni
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 x 5.190 kr.
spinner

Um bókina

Hinn magnaði Seyðisfjörður rammar inn þessa kröftugu spennusögu. Brynjar, sem starfar hjá ráðgjafarfyrirtæki í Reykjavík, hyggst eyða notalegu sumarleyfi á bernskuslóðum eystra, í fylgd dóttur sinnar. Sú áætlun leysist upp í frumparta sína á skammri stundu.

Blóðidrifinn maður með mikla höfuðáverka finnst nærri þéttbýlinu. Enginn veit hver hann er, eða hvaðan hann kom. Allra síst hann sjálfur, enda hefur hann glatað minninu. Á sama tíma eru kröftug mótmæli gegn stóru gagnaveri sem reist hefur verið í firðinum. Aðgerðasinnar slá upp tjaldbúðum við gagnaverið og krefjast upplýsinga um tilgang versins og viðskiptavini. Starfsemin kemst í fullkomið uppnám þegar framin er röð skemmdarverka í gagnaverinu og lögreglan stendur ráðþrota gagnvart spellvirkjunum.

Dagarnir sem í hönd fara eru æsilegir í meira lagi, enda féllst Brynjar á að veita eigendum gagnaversins liðsinni og hjálpa jafnframt minnislausa manninum að komast að því hver hann væri.

Sverrir Berg fléttar þræði sögunnar saman á snjallan hátt. Sagnir úr foríðinni tengjast atburðum í samtímanum í spennuþrunginni atburðarás.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning