Ósýnilegi maðurinn frá Salem

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 287 1.690 kr.
spinner

Ósýnilegi maðurinn frá Salem

1.690 kr.

Ósýnilegi maðurinn frá Salem
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 287 1.690 kr.
spinner

Um bókina

Sumarið er á enda. Ung kona finnst myrt í íbúð sinni. Þremur hæðum ofar býr ungur lögreglumaður sem hefur verið leystur frá störfum. Hann heitir Leo Junker og stenst ekki freistinguna að kynna sér morðmálið, þótt hann hafi ekki leyfi til þess. Hann laumar sér inn á svæðið, skoðar myrtu konuna sem heldur á hálsmeni í krepptum lófa. Þetta hálsmen minnir Leo óþægilega á liðna tíð.

Það er einmitt þessi liðna tíð í lífi Leo Junkers sem treður sér inn í nútímann, þegar hann hefur flækst í flókið lögreglumál sem verður honum að falli. Mál þessarar myrtu konu með hálsmenið leiðir hann á fornar slóðir – Salem, sem er úthverfi í Stokkhólmi.

Systkinin Júlía og Grimmi eiga eftir að hafa geigvænleg áhrif á líf hins unga, óreynda Leo Junker.

Christoffer Carlsson er yngsti glæpasagnahöfundur Svía, aðeins þrítugur. Ósýnilegi maðurinn frá Salem var valin besta glæpasaga ársins í Svíþjóð árið 2013. Hann er yngsti höfundurinn í Svíþjóð til að fá slík verðlaun.

3 umsagnir um Ósýnilegi maðurinn frá Salem

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning