Partíréttir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 176 1.290 kr.
spinner

Partíréttir

1.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 176 1.290 kr.
spinner

Um bókina

Í Partíréttum gefur matgæðingurinn Rósa Guðbjartsdóttir frábærar uppskriftir að ljúffengum og girnilegum réttum og öðru ljúfmeti sem einfalt og ánægjulegt er að reiða fram þegar gesti ber að garði eða við viljum gera okkur glaðan dag. Smáréttir, brauðréttir, súpur, kökur, ávaxta- og ísréttir, drykkir, fingrafæði, krakkakræsingar og fleiri freistandi partíréttir.


Rósa hefur skrifað og fjallað um mat og matargerð um langt árabil í tímaritum, blöðum, útvarpi og sjónvarpi og er þekkt fyrir spennandi, góðar en um leið einfaldar uppskriftir. Síðasta matreiðslubók hennar Eldað af lífi og sál hefur notið mikilla vinsælda og margir réttir úr þeirri bók orðnir fastir liðir í eldhúsum landsmanna. Partíréttir er full af frábærum, einföldum hugmyndum í partíið þitt – lítið sem stórt.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning