Reisubók Guðríðar Símonardóttur – skáldsaga byggð á heimildum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2003 | 499 | Verð 2.190 kr. | ||
Rafbók | 2021 | - | Verð 990 kr. | ||
Hljóðbók | 2021 | App | Verð 1.490 kr. | Setja í körfu |
Reisubók Guðríðar Símonardóttur – skáldsaga byggð á heimildum
Verð frá 990 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2003 | 499 | Verð 2.190 kr. | ||
Rafbók | 2021 | - | Verð 990 kr. | ||
Hljóðbók | 2021 | App | Verð 1.490 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Árið 1627 varð einhver hrikalegasti atburður Íslandssögunnar, Tyrkjaránið svokallaða, þegar ofbeldismenn frá annarri veröld hertóku um 400 Íslendinga og fluttu þá nauðuga suður um höf til þrældóms í Barbaríinu.
Ein í hópnum var Guðríður Símonardóttir, ung sjómannskona og móðir í Vestmannaeyjum. Steinunn Jóhannesdóttir fylgir Guðríði á hennar löngu reisu í þrælakistuna í Alsír, segir frá níu ára vist hennar þar og lýsir ferðinni norður á bóginn aftur uns hún eygir Ísland á ný með Hallgrími Péturssyni Fjöldi annarra hernumdra Íslendinga fær einnig nafn og sögu í bókinni þar sem skyggnst er á bak við tjöldin í heimi araba og islams á 17. öld.
Að baki þessu viðamikla skáldverki liggur sex ára rannsóknarvinna og ferðalög á söguslóðir í Alsír og Marokkó, á Mallorca, í Frakklandi, Þýskalandi, Englandi, Hollandi og Danmörku. Þótt fátt sé vitað með vissu um ótrúlegt lífshlaup Guðríðar er æði margt að finna um aldarandann og lifnaðarhætti fólks á þessum tíma. Í þann sjóð sækir höfundur og skapar heilsteypta, ævintýralega og spennandi sögu af ánauð og frelsun sterkrar konu. …
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 22 klukkustundir og 42 mínútur að lengd. Steinunn Jóhannesdóttir les.