Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Sækið ljósuna
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2013 | 490 kr. | |||
Kilja | 2013 | 413 | 2.980 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2013 | 490 kr. | |||
Kilja | 2013 | 413 | 2.980 kr. |
Um bókina
Jennifer Worth var ljósmóðir í aumustu fátækrahverfum Lundúnaborgar á sjötta áratug síðustu aldar og frá þeirri einstæðu reynslu segir hún í þessari bók.
Jenny Lee er í hópi hjúkrunarkvenna og ljósmæðra sem hafa bækistöð hjá nunnureglu og eru sendar inn á heimili þar sem börn eru að fæðast. Við sögu koma ótal eftirminnilegar persónur: skjólstæðingar ljósmæðranna og aðstandendur þeirra, íbúar hverfisins – margir býsna skrautlegir – melludólgar og lögregluþjónar, nunnurnar og félagar Jennyar og starfssystur.
Þáttaraðir BBC eftir þessari bók og tveimur seinni bókum höfundar hafa orðið geysivinsælar víða um heim, meðal annars hér á landi.
Ólöf Eldjárn þýddi.
Tengdar bækur
No data was found
3 umsagnir um Sækið ljósuna
Kristrun Hauksdottir –
„Worth er mikið niðri fyrir þegar hún lýsir ýmis konar óréttlæti og mannvonsku en hún er líka bráðfyndin, hlý og sögumaður af guðs náð. Margar mannlýsingarnar í bókinni eru gjörsamlega óborganlegar. … Þetta er óskaplega skemmtileg lesning, undir niðri kraumar sterk réttlætiskennd og útkoman úr þessari blöndu beittrar gagnrýni og hnyttni er býsna góð.“
Anna Lilja Þórisdóttir / Morgunblaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Vald höfundar á lýsingum, nákvæmni hennar og makalaus persónuauðlegð kalla fram umhverfi sem verður ógleymanlegt … heillaði mig og greinilega þúsundir annarra lesenda gersamlega upp úr skónum.“
The Guardian
Kristrun Hauksdottir –
„Í bókinni er að finna sterkar og lifandi mannlýsingar og glöggar lýsingar á aðstæðum sem oft eru ömurlegar. Hreinskilin og eftirminnileg frásögn í bók sem ætti að falla stórum lesendahópi í geð. Ólöf Eldjárn þýðir verkið með miklum ágætum.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið