Stöðvið brúðkaupið

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2013 237 490 kr.
spinner

Stöðvið brúðkaupið

490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2013 237 490 kr.
spinner

Um bókina

Skilnaðarlögfræðingurinn Annabelle Coakley verður miður sín þegar móðir hennar tilkynnir að hún ætli að giftast gamalli, útbrunninni kvikmyndastjörnu sem á ótal misheppnuð hjónabönd að baki. Annabelle pakkar í skyndi og stekkur upp í næstu vél, staðráðin í að bjarga mömmu sinni frá alræmdum flagara og stöðva brúðkaupið!

Á sama tíma verður fjármálafrömuðurinn Clay Castleberry, sonur brúðgumans, ólmur af reiði þegar hann fréttir að faðir hans sé trúlofaður í enn eitt skiptið. Clay frestar öllum sínum viðskiptum og fer í skyndi til föður síns í þeim tilgangi að afhjúpa nýjasta gullgrafarann og afstýra giftingunni.

Þótt Annabelle og Clay séu sammála um að ráðahagur foreldra þeirra sé fásinna og vilji ekkert frekar en stía þeim í sundur, eiga þau erfitt með að vinna saman að því markmiði, enda skapast mikil spenna á milli þeirra. Þrátt fyrir gagnkvæma andúð og vantraust laðast þau hvort að öðru á óviðráðanlegan hátt. En mun þeim takast að stöðva brúðkaup foreldra sinna?

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning