Þrettán ástæður
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 290 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 290 | 990 kr. |
Um bókina
„Reglurnar eru einfaldar. Þær eru bara tvær. Fyrsta regla: Þú hlustar. Önnur regla: Þú sendir þetta áfram. Vonandi verður hvorugt auðvelt fyrir þig.“
Þegar Clay Jensen kemur heim úr skólanum bíður hans óvænt sending: skókassi, fullur af gamaldags kassettum. Þegar Clay finnur loksins tæki til að spila þær í heyrir hann rödd sem hann þekkir, rödd Hönnu Baker, bekkjarsystur hans sem hann er búinn að vera skotinn í síðan hann sá hana fyrst … og sem er nýbúin að fremja sjálfsvíg.
Á spólunum gefur Hanna þrettán ástæður fyrir því sem hún gerði – nefnir þrettán manneskjur sem höfðu áhrif á ákvörðun hennar – og úr því að Clay fékk þær sendar kemur hann þar við sögu. En hvað í veröldinni hefur hann gert sem ýtti Hönnu fram af brúninni? Eina leiðin til að komast að því er að hlusta. Fram undan er löng og erfið nótt sem breytir Clay til frambúðar.
Þrettán ástæður var fyrsta skáldsaga Jay Asher. Hún sat lengi á metsölulista New York Times og hefur verið hlaðin lofi um allan heim. Meðal þeirra sem veitt hafa bókinni viðurkenningu eru Samtök barnabókabúða í Bandaríkjunum, Samtök bandarískra bókasafnsfræðinga, framhaldsskólanemar í þremur fylkjum Bandaríkjanna og tímaritin Publishers Weekly, New York Times og Kirkus Reviews.
Ágúst Pétursson þýddi.
1 umsögn um Þrettán ástæður
Árni Þór –
„Hér er sagt frá verstu afleiðingum eineltis og snúnum samskiptum fólks á unglingsaldri og hefur bókin fengið fjölda verðlauna frá ýmsum samtökum. En þrátt fyrir grafalvarlegt umfjöllunarefnið er þetta skemmtilega skrifuð bók og afbragðsvel þýdd.“
Anna Lilja Þórisdóttir / Morgunblaðið