TMM 4. hefti 2021

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúkspjalda 2021 144 2.690 kr.
spinner

TMM 4. hefti 2021

2.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúkspjalda 2021 144 2.690 kr.
spinner

Um bókina

Steinunn Sigurðardóttir opnar heftið á ljóðinu Háttalög, en þau Valgerður Kr Brynjólfsdóttir, Steinunn Lilja Emilsdóttir og Vésteinn Lúðvíksson eiga einnig ljóð í heftinu. Steinar Bragi birtir smásöguna Svartar hendurEiríkur Örn Norðdahl þýðir ljóð eftir Gary Barwin og Ragnar Karlsson þýðir ljóð bandaríska skáldsins Lawrence Ferlinghetti, sem lést fyrr á þessu ári.
Ástráður Eysteinsson fjallar í vandaðri grein um birtingarmyndir Snæfellsjökuls í íslenskum bókmenntum og prýðir sami jökull kápuna á mynd eftir Anne Herzog. Sænski þýðandinn John Swedenmark skrifar um Einar Áskel og mömmu hans í stórskemmtilegri grein en við kvölddum höfund hans Gunillu Bergström fyrir stuttu. Eyja M. Brynjarsdóttir færir okkur nýtt sjónarhorn á umræðuna um slaufunarmenningu sem hefur verið talsvert til umfjöllunar á síðum TMM og víðar í samfélaginu á árinu. Guðrún Steinþórsdóttir skrifar grein um vinsældir Eddu-bóka Jónínu Leósdóttur og Björn Þór Vilhjálmsson þýðir grein Greg Burris um sprenginguna mannskæðu i Beirut í fyrra og óvænta tengingu við íslenskar kvikmyndir. Niftar fjallar um sársaukafulla reynslu og Helgi Bernódusson minnist þingmannsins Svavars Gestsonar.
Það er þarft og gott að staldra við og minnast, og ekki síst viðeigandi í lok árs að líta yfir farinn veg og móta stefnuna fram á við. Við viljum þakka pistlahöfundi ársins Ewu Marcinek sérstaklega fyrir næm, falleg og áhrifamikil skrif sem fjölluðu meðal annars um reynslu erlendra skálda á Íslandi, og vonum að viðleitni okkar við að birta fjölbreyttari raddir á árinu hafi skilað sér til ykkar lesenda. Umfjallanir um bækur eru svo á sínum stað, það eru þau Sunna Dís Másdóttir, Victoria Bakshina, Brynja Hjálmsdóttir og Jóhann Helgi Heiðdal sem færa okkur þær að þessu sinni.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning