Tíu dagar sem skóku heiminn – frásögn af októberbyltingunni skrifuð af sjónarvotti

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 299 3.390 kr.
spinner

Tíu dagar sem skóku heiminn – frásögn af októberbyltingunni skrifuð af sjónarvotti

3.390 kr.

Tíu dagar sem skóku heiminn - frásögn af októberbyltingunni skrifuð af sjónarvotti
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 299 3.390 kr.
spinner

Um bókina

John Reed fæddist árið 1887 í Portland, Oregon í Bandaríkjunum. Hann ólst upp hjá vel stæðum foreldrum og hlaut menntun við Harvard. Hann skapaði sér fljótt feril sem blaðamaður við ýmis blöð og tímarit, og fékk vaxandi áhuga á samfélagslegum málefnum.

Í september 1917 kom John til Petrograd í Rússlandi til að fylgjast með þeim miklu atburðum sem þar voru í uppsiglingu. Hann fylgdist gaumgæfilega með aðdraganda og framvindu Októberbyltingarinnar, bæði í herbúðum helstu aðila átakanna, og viðhorfum og atburðum í samfélaginu.

Hann fór heim snemma árs 1918 og hóf að skrifa bókina, Tíu dagar sem skóku heiminn, um atburði byltingarinnar. Jafnframt tók hann þátt í uppgjöri innan sósíalískrar hreyfingar í Bandaríkjunum. Árið 1919 fór John aftur til Rússlands og sat annað þing Komintern í mars 1920. Hann veiktist af taugaveiki og lést um haustið 1920. John Reed var mikils metinn í Rússlandi og var grafinn í Kremlarmúr.

John Reed skrifaði nokkrar bækur, en Tíu dagar sem skóku heiminn er þekktasta og mikilvægasta bók hans. Hún er einnig einstök í hópi bóka um byltinguna, vegna þess hvað hún gefur víða mynd af atburðum, og setur þá í samhengi.

Tengdar bækur

5.790 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
5.490 kr.
4.990 kr.
2.590 kr.
6.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.

INNskráning

Nýskráning