Veiða vind – tónlistarævintýri
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 990 kr. |
Um bókina
Um leið og litlibróðir stekkur af stað með sverð í hendi og segist vera Ólafur riddarahross fer hugurinn á flug. Á vegi hans verða álfastelpa, grimmur björn og háfleygur örn sem læsir í hann klónum. Að lokum þeysist hann um á drekabaki með vindinn í fangið.
Veiða vind er spennandi saga frá Færeyjum sem sögð er með orðum, myndum og tónlist.
Höfundur textans er Rakel Helmsdal, Janus á Húsagarði myndskreytti og Kári Bæk samdi tónlistina sem fylgir með á geisladiski ásamt upplestri Benedikts Erlingssonar á sögunni.
Þórarinn Eldjárn þýddi.
****1/2
„[Rakel Helmsdal] tekst hér að skapa spennandi og skemmtilega sögu sem vinnur með skapandi hætti með kvæðið um Ólaf riddararós. … Óhætt er að segja að bókin og diskurinn séu miklir gæðagripir sem gleðja munu jafnt lesendur sem áheyrendur.“
Silja Björk Huldudóttir / Morgunblaðið