Vera í víti

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2019 App 2.290 kr. Setja í körfu
Rafbók 2019 - 1.590 kr.
spinner

Vera í víti

1.590 kr.2.290 kr.

Vera í víti
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2019 App 2.290 kr. Setja í körfu
Rafbók 2019 - 1.590 kr.
spinner

Um bókina

Höfundur Kvennaklósettsins sendir hér frá sér ógleymanlegar endurminningar um lygilegan sigur sinn á krabbameini í vélinda. Raunar sigraðist Marilyn French þrisvar á dauðanum. Eftir nokkrar rangar sjúkdómsgreiningar var hún loks árið 1992 greind með krabbamein í vélinda. Í þessum endurminningum leiðir hún lesendur í gegnum skelfilega reynslu sína af geisla- og lyfjameðferð og dáinu sem fylgdi í kjölfarið. Enginn bjóst við að hún kæmi aftur til meðvitundar og þvi síður að hún næði bata.

Þrátt fyrir alvarleg veikindi sem hrjáðu hana lengi á eftir tókst henni að lifa af og þótti það ganga kraftaverki næst. Með sömu skarpskyggni, greind og tilfinningalegri einlægni og Marilyn French hefur beitt til að grannskoða líf svo margra annarra kvenna í skáldskapnum sökkvir hún sér nú ofan í eigið líf þar sem hún heyr baráttu við lækna og heilbrigðiskerfið, býður greiningum og hrakspám birginn og stígur upp úr áföllunum heilli og opnari en nokkru sinni fyrr. Þótt bókin sé hugvekja um líðan dauðvona manneskju þá er viðfangsefni hennar ekki síður lífið sjálft.

Dauðinn setur mark sitt á lífið og opnar okkur nýja sýn á merkingu þess og tilgang. Dauðinn er „móðir fegurðarinnar“ eins og Wallace Stevens ritaði eitt sinn en dauðinn er líka móðir tilgangsins. Þegar Marilyn French skoðar hlutverk dauðans í lífi sínu þá veitir hún lesendum hlutdeild í þýðingu sársauka og þjáninga fyrir manneskju sem hafnar yfirskilvitlegri hugsun og því hvaða áhrif nálægð dauðans hefur á tilveru okkar.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 13 mínútur að lengd. Álfrún Helga Örnólfsdóttir les.

Tengdar bækur

5.790 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
5.490 kr.
4.990 kr.
2.590 kr.
6.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.

INNskráning

Nýskráning