Vinur sonur bróðir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2010 1.695 kr.
spinner

Vinur sonur bróðir

1.695 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2010 1.695 kr.
spinner

Um bókina

Mikið gengur á í lífi Óla haustið 2008, þegar hann byrjar í 10. bekk. Ekki nóg með að íslenskt þjóðfélag fari á hliðina með tilheyrandi látum, heldur fara foreldrar hans að fjölga mannkyninu á gamals aldri! Svo kemur ný stelpa í bekkinn og allt breytist. Óli þarf að glíma við aðstæður, tilfinningar og spurningar sem hann hefur fram að því sloppið við.

Hvers vegna er Æður, stelpan með skrýtna nafnið, svona dásamlega öðruvísi en allir aðrir? Er eðlilegt að það sé til fjölskylda á Íslandi sem ekki horfir á sjónvarp og á ekki bíl? Og hvað þarf maður svo að gera til þess að uppfylla skilyrði Jólakattavinafélagsins? Hver er annars kynþáttahatarinn sem sendir ljót bréf til fjölskyldu Súsönnu? Ber hann líka ábyrgð á dularfullu hvarfi heimiliskattarins? Og tekst krökkunum að leysa málið áður en þau fá lungnabólgu við njósnastörf?

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning