Leyndarmálið hans pabba
Tilboð: 2.095 kr. Verð: 2.790 kr.

Kaupa

Leyndarmálið hans pabba

Hversu lengi er hægt að þegja yfir hræðilegu leyndarmáli? Því velta systkinin í þessari bók fyrir sér – umkringd litríkum persónum á borð við leynilögreglumanninn Vidda nikótín, íþróttabrjálæðinginn Ívar bang-bang, besta vininn Bjössa börger, hina óþolandi Bertu bleiku, að ógleymdri mannætunni í Hlíðunum sem sumir trúa að sé einhvers staðar á kreiki.

Leyndarmálið hans pabba er óborganlega fyndin spennusaga um venjulega krakka sem glíma við óvenjulegt vandamál með ófyrirséðum málalokum. Um leið er þetta saga um raunverulegt vandamál sem margir krakkar búa við – togstreituna um hvenær eigi að þegja og hvenær eigi að segja frá. Leyndarmálið hans pabba er bók sem enginn leggur frá sér fyrr en að lestri loknum.

*****

„Heimurinn sem Þórarinn Leifsson skapar í þessari bók er með eindæmum skemmtilegur … Bókin er spennandi, fyndin og frumleg og á pottþétt eftir að vera lengi í minnum höfð. … Þetta er tvímælalaust besta barnabók sem ég hef lesið í langan tíma!
Berglind Häsler / DV

„Las mér til mikillar ánægju … fyndin … bráðskemmtileg.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan / RÚV

****

„Leyndarmálið hans pabba er upplögð bók til þess að lesa með krökkum og ræða þau vandamál sem þeir glíma við … fyrir miklu fleiri en börn með foreldravandamál, hún er fyrir alla sem hafa gaman af hryllings- og ærslasögum.“
Hildur Heimisdóttir / Fréttablaðið

 

Höfundur: Þórarinn Leifsson

Nýjast | A–Ö | Verð ↓
Þórarinn Leifsson er fæddur í Reykjavík 1966. Hann hefur myndskreytt bækur, bókakápur og blaðagreinar en einnig starfað sem götulistamaður og grafískur hönnuður. Meðal verka hans eru myndskreytingar við röð ævintýra eftir H.C. Andersen sem kom ...
Tilboð: 1.695 kr.
Verð: 1.990 kr.
Kaupa

Tilboð: 745 kr.
Verð: 990 kr.
Kaupa

Tilboð: 1.685 kr.
Verð: 1.980 kr.
Kaupa


 
Varan er uppseld!
Nýjar bækur | Spennusögur | Barnabækur | Skáldsögur | Ljóð
karfan mín
Leita