![]() |
355 bls.
Mál og menning Útgáfuár: 2010 HreinsunAliide á ekki von á góðu þegar hún finnur ókunnuga stúlku, Zöru, hrakta og hrjáða í garðinum sínum einn morguninn. Er stúlkan þar af algerri tilviljun eða ætlaði hún sér einmitt á þennan stað? Aliide veitir henni húsaskjól og smám saman kemst hún að því að saga þeirra Zöru er samfléttuð, og fyrir lesanda opnast víð sýn yfir harmsögu Eista á liðinni öld. Hreinsun er bókmenntaviðburður, margradda skáldsaga um reynslu fólks í Eistlandi undir hæl Sovétríkjanna. Jafnframt er frásögnin nærgöngul lýsing á tveim konum sem eru ítrekað beygðar og niðurlægðar en rísa alltaf upp á ný. Sagan hefur fært Sofi Oksanen fjölmörg virt verðlaun og viðurkenningar, m.a. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Þjóðleikhúsið íslenska sýndi leikritið Hreinsun veturinn 2011-12 við miklar vinsældir. Aðalhlutverkið, Aliide, lék Margrét Helga Jóhannsdóttir, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir lék Zöru en Vigdís Hrefna Pálsdóttir Aliide unga. Vorið 2012 var frumsýnd í Helsinki ópera eftir sögunni og einnig kvikmynd eftir henni. Sigurður Karlsson þýddi. ***** „… gríðarlega merkileg bók og góð skáldsaga … Sálfræðitryllir.“ „Hún hefur slíkar víddir þessi skáldsaga að það er ekki hægt annað en vera gríðarlega hrifinn af henni. Þetta er alger snilldarbók … ofboðslega góð skáldsaga.“
Höfundur: Sofi Oksanen Afskráning af póstlista
Hrafninn – kiljuklúbbur Klassíski kiljuklúbburinn Uglan - kiljuklúbbur Tímarit Máls og menningar Forlagið · Bræðraborgarstíg 7 · 101 Reykjavík · Sími 575 5600 · Fax 575 5601 · forlagid@forlagid.is
| ![]() |