![]() |
870 bls.
Forlagið Útgáfuár: 2011 Fjallkirkjan„Þau ár þegar ég enn var ungur og saklaus að erfðasyndinni undanskilinni; þau ár þegar viðburðir lífsins miðluðu mér reynslu sem var laus við beiskju; þau ár þegar vorkunn mín með öllu kviku var ógagnrýn og einlæg [...] þau ár þegar ég grillti ekki kvöldið á morgnana og sat öruggur í skjóli undir grasi grónum moldarvegg og lék mér að stráum; þau eru eru liðin og koma aldrei aftur.“ Upphafslínur Fjallkirkjunnar verða öllum ógleymanlegar enda fylgir Gunnar Gunnarsson þeim eftir með langri og listilega gerðri uppvaxtar- og þroskasögu Ugga Greipssonar sem heillað hefur kynslóðir lesenda víða um heim frá því að hún kom fyrst út á dönsku á árunum 1923-1928. Þetta mikla skáldver er nú gefið út handa lesendum tuttugustu og fyrstu aldar með nýjum formála eftir Gunnar Stefánsson. Halldór Laxness þýddi. „… hugljúfari lestur og eftirminnilegri flestum skáldrita hans, kóróna á verki höfundarins til þessa dags.“ „Eitt unaðslegasta skáldverk sem samið hefur verið af íslenzkum höfundi.“ Höfundur: Gunnar Gunnarsson ![]() Afskráning af póstlista
Hrafninn – kiljuklúbbur Klassíski kiljuklúbburinn Uglan - kiljuklúbbur Tímarit Máls og menningar Forlagið · Bræðraborgarstíg 7 · 101 Reykjavík · Sími 575 5600 · Fax 575 5601 · forlagid@forlagid.is
| ![]() |