Reykjavíkurnætur
Forlagsverð:
3.290 kr.
Kaupa
AÐRAR ÚTGÁFUR
3190 kr.
3390 kr.
2545 kr.
285 bls.
Vaka Helgafell
Útgáfuár: 2012

Reykjavíkurnætur

Erlendur er nýlega genginn til liðs við lögregluna og starfið á strætum Reykjavíkur er erilsamt: umferðarslys, þjófnaðir, heimilisofbeldi, drykkja, smygl … Óútskýrt mannslát lætur hann ekki í friði. Útigangsmaður sem hann hefur hitt á næturvöktum finnst drukknaður í gamalli mógröf á óbyggðu svæði og öllum virðist standa á sama. En örlög hans ásækja Erlend og leiða hann æ dýpra inn í framandi heima borgarinnar.

Reykjavíkurnætur fjallar um fyrsta mál lögreglumannsins Erlendar, sem allir þekkja úr fyrri bókum höfundar, og er sextánda skáldsaga Arnaldar Indriðasonar. Bækur hans hafa mörg undangengin ár notið gríðarlegra vinsælda og hlotið frábæra dóma, jafnt hér heima sem erlendis. Þær hafa verið gefnar út á um fjörutíu tungumálum og selst í milljónum eintaka. Arnaldur hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar og í fyrra var nafn hans efst á lista breska stórblaðsins The Guardian yfir bestu evrópsku sakamálahöfunda samtímans.

„Arnaldur bregst ekki.
Kolbrún Bergþórsdóttir/ Morgunblaðið

* * * * *
… Arnaldur í sínu allra besta formi; hér er spenna og drama á hverri síðu, í hverjum kafla. Þetta er íslenskur veruleiki. Enginn segir betur frá verri hliðum hans en Arnaldur, hann er sögumaður af Guðs náð. Þess vegna er hann einn af bestu glæpasagnahöfundum samtímans.“
Björn Ingi Hrafnsson / pressan.is

* * * * 1/2
Arnaldur Indriðason hefur náð lengst íslenskra spennusagnahöfunda og er í fremstu röð norrænna krimmahöfunda og þó víðar væri leitað. En hann er mikið meira en glæpasagnahöfundur, því lýsingar hans á mönnum og málefnum á líðandi stundu hverju sinni eru til mikillar fyrirmyndar og dýpka verk hans til muna. Hann er hreinlega alltaf skrefi framar en aðrir Íslendingar og ýmsir aðrir, sem róa á sömu mið. … Reykjavíkurnætur er ekki aðeins spennusaga heldur frábær samtímasaga um sorgir og þrár. … Frábær bók og enn ein rósin í hnappagat Arnaldar.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið

„Öll uppbygging fléttu og söguþráða [er] unnin af öryggi og festu … Að auki býr sagan yfir þeirri næmni á umhverfi, sögu og aðstæður sem einkennir bestu verk Arnaldar og er í það heila afar vel heppnað skáldverk, bæði sem glæpasaga og borgarmynd. Aðdáendur Arnaldar geta því andað léttar: Erlendur Sveinsson er svo sannarlega ekki horfinn, hann gengur hér aftur og það fer honum vel.
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is

„Mjög flott lýsing … á samfélagi útigangsmanna … breið saga … plottið flott. Hann kom mér á óvart í lokin. … höfundur sem getur skrifað hvað sem er.“
Sigurður Valgeirsson / Kiljan

„Arnaldur hefur alltaf staðið með fólki sem hefur orðið undir í lífinu eða er beitt einhvers konar ofbeldi og hann gerir það alltaf mjög fallega og mér finnst lýsingin á rónalífinu … bara frábær. … Hann er svo flinkur höfundur í því að lýsa staðháttum, andrúmslofti og fornum tíma.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan

„Sem stílisti er Arnaldur … í stöðugri framför og … er Reykjavíkurnætur meðal hans best skrifuðu bóka. Bygging sögunnar er sömuleiðis vönduð og það hvernig málin tvö vefast saman afskaplega fagmannlega gert.
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið


„Á alþjóðavettvangi er verðlaunahöfundurinn Arnaldur Indriðason án nokkurs vafa sá sem best fjallar um störf lögreglunnar.“
Shots Magazine

„… höfundur sem verður sífellt betri.“
The Sunday Times
















Höfundur: Arnaldur Indriðason

Nýjast | A–Ö | Verð ↓
Arnaldur Indriðason (f. 1961) hóf rithöfundarferil sinn árið 1997 þegar hann sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu, Syni duftsins. Æ síðan hefur komið ný bók frá Arnaldi á ári hverju. Fyrstu bækurnar vöktu athygli lesenda og hlutu ...
Forlagsverð: 2.545 kr.
Kaupa

Forlagsverð: 2.545 kr.
Kaupa

Rafbók
Forlagsverð: 3.190 kr.
Kaupa
Kaupa gjafabréf

Rafbók
Forlagsverð: 1.990 kr.
Kaupa
Kaupa gjafabréf

Rafbók
Forlagsverð: 1.990 kr.
Kaupa
Kaupa gjafabréf

Forlagsverð: 2.290 kr.
Kaupa

Rafbók
Forlagsverð: 2.490 kr.
Kaupa
Kaupa gjafabréf

Forlagsverð: 2.990 kr.
Kaupa

Forlagsverð: 2.990 kr.
Kaupa

Forlagsverð: 2.790 kr.
Kaupa

Forlagsverð: 1.790 kr.
Kaupa

Forlagsverð: 1.790 kr.
Kaupa

Forlagsverð: 1.490 kr.
Kaupa

Nýjar bækur | Spennusögur | Barnabækur | Skáldsögur | Ljóð
karfan mín
Leita