Agnesarkver: Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 188 4.290 kr.
✓
spinner

Agnesarkver: Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse

4.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 188 4.290 kr.
✓
spinner

Um bókina

Bókin Agnesarkver eftir Natalie M. Van Deusen, prófessor við Alberta-háskóla í Edmonton í Kanada, fjallar um heilaga Agnesi sem talið er að hafi látið lífið aðeins 13 ára gömul í umfangsmiklum ofsóknum á hendur kristnum mönnum í Róm um 303–304. Hún mun hafa neitað að giftast heiðnum syni háttsetts embættismanns og haldið fast við trú sína og sannfæringu þrátt fyrir hótanir og misþyrmingar.
Saga Agnesar var þýdd á norrænu í kaþólskum sið og áhugi á henni dvínaði ekki á Íslandi við siðbreytinguna því að fjögur kvæði voru ort um Agnesi eftir siðaskipti. Þetta eru Vísur af heilagri jómfrú Agnesi; Rímur af Agnesi píslarvotti eftir sr. Eirík Hallsson (1614–1698); Agnesarvísa og Agnesarkvæði eftir Þorvald Magnússon (1670–1741). Af þessum kvæðum var það síðastnefnda vinsælast sem sjá má af því að kvæðið er varðveitt í fjölda handrita en það var líka sungið og á síðari hluta 20. aldar var enn til fólk sem kunni bæði lagið og textann eins og fram kemur á vefsíðunni ismus.is.
Í Agnesarkveri er greinargott yfirlit yfir heimildir um Agnesi og sögu hennar auk þess sem texti kvæðanna fjögurra er birtur ásamt inngangi og fræðilegri umfjöllun. Myndir sem tengjast sögu Agnesar prýða bókina og henni fylgir nafnaskrá. Ritstjórar bókarinnar eru Annette Lassen og Margrét Eggertsdóttir.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Agnesarkver: Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse”

Tengdar bækur

2.990 kr. – 4.290 kr.
Original price was: 3.690 kr..Current price is: 1.990 kr..
1.990 kr.
16.190 kr.
1.290 kr.
Original price was: 2.390 kr..Current price is: 1.690 kr..
1.690 kr.
Original price was: 3.890 kr..Current price is: 1.599 kr..
Original price was: 4.290 kr..Current price is: 1.990 kr..
4.290 kr. – 8.290 kr.

INNskráning

Nýskráning