Bókaútgáfa og menningararfur
Um Forlagið og Mál og menningu
Ein stærsta bókaútgáfa landsins, með ríflega eitt hundrað nýja titla á ári, og bókabúð á Grandanum þar sem fást bækur allra helstu útgefenda landsins.

Forlagið
Forlagið gefur út bækur undir merkjum Forlagsins, Máls og menningar, Vöku-Helgafells, JPV og Iðunnar og rekur einnig metnaðarfulla kortaútgáfu. Hjá Forlaginu koma út ríflega eitt hundrað nýir titlar ár hvert; bækur af öllu tagi og gerðum og á ýmsum tungumálum. Þá kemur Tímarit Máls og menningar út fjórum sinnum á ári.
Forlagið var stofnað árið 2007 og eigandi þess er bókmenntafélagið Mál og menning. Hjá Forlaginu starfa um 40 starfsmenn. Stjórn Forlagsins skipa Halldór Guðmundsson, formaður; Örnólfur Thorsson, varaformaður; Árni Kr. Einarsson, Daníel Helgason og Ragnhildur Helgadóttir.
Árið 2023 setti Forlagið á stofn Reykjavík Literary Agency sem annast réttindasölu á íslenskum bókum til erlendra útgefenda, kvikmyndaframleiðenda og annarra aðila.
Bókabúð Forlagsins og skrifstofur eru til húsa að Fiskislóð 39, á Grandanum í Reykjavík. Þar má finna bækur allra helstu útgefenda landsins – og ekki bara þær nýjustu heldur verulegt magn eldri titla. Á Fiskislóðinni er nægt pláss fyrir allar tegundir bóka og þær fást á kostakjörum árið um kring. Í september er þar haldinn veglegur bókamarkaður.
Um Mál og menningu
Mál og menning er hvort tveggja, eitt af vörumerkjum Forlagsins en um leið eigandi þess.

Bókmenntafélagið Mál og menning var stofnað 1937 af hópi róttækra rithöfunda og bókmenntamanna undir forystu Kristins E. Andréssonar. Sami hópur hafði áður staðið að útgáfu tímaritsins Rauðir pennar. Mál og menning var upphaflega eins konar bókaklúbbur, seldi félagsmönnum sínum bækur í áskrift og markmiðið var ekki síst að lækka bókaverð til almennings, en frá árinu 1938 gaf félagið líka út Tímarit Máls og menningar.
Félagasöfnun gekk vel fyrstu árin en heimsstyrjöldin gerði útgáfunni erfitt fyrir, bæði af praktískum ástæðum (það var til dæmis pappírsskortur í landinu) og pólitískum, því framan af stríðinu – þar til herir Hitlers réðust inn í Sovétríkin – voru íslenskir sósíalistar mjög einangraðir í stjórnmálum landsins. Stjórn MM fór þá leið að renna fleiri stoðum undir félagið með því að stofna svokallað félagsráð árið 1940. Þar fékk útgáfan til liðs við sig borgaralega menntamenn, eins og til dæmis Sigurð Nordal, og reyndi að höfða til fleiri þjóðfélagshópa. Í félagsráðinu áttu 35 manns sæti og skyldu að jafnaði sjö vera kosnir til fimm ára í senn. Félagsráðið hafði æðsta vald í málefnum félagsins, það var og er eins konar ígildi hluthafafundar, og kaus félaginu stjórn.
Á seinni hluta sjötta áratugarins réðst MM í það stórvirki að byggja húsið á Laugavegi 18, þar sem Bókabúð Máls og menningar var síðan opnuð síðla árs 1961. Kristinn fékk verulegan fjárstyrk frá Sovétríkjunum til byggingarinnar, eins og sagnfræðingar hafa síðan sýnt fram á, enda var húsið stundum kallað Rúblan.
Á ýmsu gekk í starfi félagsins eftir að Kristinn lét þar af störfum 1971, eins og reyndar alla tíð, ekki síst í kringum starfslok Sigfúsar Daðasonar sem tekið hafði við af Kristni, og víða hefur verið fjallað um. Á síðasta áratug 20. aldar var Mál og menning orðin stærsta bókaútgáfa landsins.
Um aldamótin var rekstur útgáfunnar færður í hlutafélag og hann var síðan sameinaður Vöku-Helgafell þegar útgáfan Edda var stofnuð. Hún sendi frá sér mörg stórvirki, meðal annars nýja útgáfu Íslenskrar orðabókar, en lenti fljótlega í fjárhagserfiðleikum sem varð til þess að Björgólfur Guðmundsson keypti meirihlutann í félaginu en Mál og menning var þó áfram meðeigandi. Reksturinn var eftir sem áður erfiður og svo fór að Edda seldi frá sér bókabúðareksturinn, meðal annars á Laugavegi 18, og fylgdi vörumerkið „Bókabúð Máls og menningar“ með í kaupunum. Húsið var hins vegar eftir sem áður í eigu MM bókmenntafélags sem seldi það 2007 til að kaupa aftur bókaútgáfu Eddu, þar á meðal vörumerkin Mál og menningu og Vöku-Helgafell. Bókaútgáfuhluti Eddu var síðan sameinaður JPV útgáfu og Forlagið stofnað, síðla árs 2007.
Mál og menning bókmenntafélag átti helming bókaútgáfunnar, en feðgarnir Jóhann Páll Valdimarsson og Egill Örn hinn helminginn. Forlagið var langstærsta bókaútgáfa landsins og því vegnaði vel. Í ársbyrjun 2017 ákvað Jóhann Páll að selja sinn hlut í fyrirtækinu og vorið 2021 keypti Mál og menning bókmenntafélag einnig hlut Egils Arnar og er nú eini eigandi þess.
Forlagið er ein stærsta bókaútgáfa landsins og gefur út undir ýmsum nöfnum (Mál og menning, Vaka-Helgafell, JPV útgáfa o.fl.) og rekur jafnframt eina öflugustu bókabúð landsins á Fiskislóð, í húsi sem Forlagið á. Mál og menning er því hvort tveggja, eitt af vörumerkjum Forlagsins en um leið eigandi þess. Fyrirtækið veltir rúmlega einum milljarði á ári.
Mál og menning bókmenntafélag er rekið eins og sjálfseignarstofnun, þótt það teljist félagasamtök. Það starfar eftir skipulagsskrá og félagsráðið hefur æðsta vald í málefnum þess. Líkt og í sjálfseignarstofnunum er ekki um það að ræða að félagsmenn geti tekið út fé eða hagnast á starfseminni.
Félagsráðið hittist minnst einu sinni á ári, á aðalfundi að vori, en stundum er fundað oftar, ef þurfa þykir, enda hvílir mikil ábyrgð á Máli og menningu sem eina eiganda Forlagsins.
Stjórn og félagsráð
Stjórn
Formaður
Halldór Guðmundsson
Varaformaður
Örnólfur Thorsson
Stjórnarmenn
- Sigþrúður Gunnarsdóttir
- Árni Kr. Einarsson
- Ragnhildur Helgadóttir
Félagsráð
Eftir aðalfund fyrir árið 2025, haldinn 7. maí 2026
Félagsráðið hefur æðsta vald í málefnum Máls og menningar og kýs félaginu stjórn. Fulltrúar eru kosnir til fimm ára í senn, ein fylking á ári.
Kosin til ársins2026
- Árni Sigurjónsson
- Einar Kárason
- Elín Edda Pálsdóttir
- Pétur Gunnarsson
- Gísli Sigurðsson
- Vésteinn Ólason
Kosin til ársins2027
- Sigþrúður Gunnarsdóttir
- Silja Aðalsteinsdóttir
- Sigurjón B. Sigurðsson
- Sverrir Norland
- Arndís Þórarinsdóttir
- Tómas R. Einarsson
- Ragnhildur Helgadóttir
Kosin til ársins2028
- Páll Valsson
- Stefán Jón Hafstein
- Halldór Guðmundsson
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
- Örnólfur Thorsson
- Daníel Helgason
- Bergur Ebbi Benediktsson
Kosin til ársins2029
- Árni Kr. Einarsson
- Már Guðmundsson
- Þorleifur Hauksson
- Stella Soffía Jóhannesdóttir
- Æsa Bjarnadóttir
- Þorsteinn Daði Gunnarsson
- Ásgeir Brynjar Torfason
Kosin til ársins2030
- Anna Einarsdóttir
- Hólmfríður Matthíasdóttir
- Auður Jónsdóttir
- Borgar Jónsteinsson
- Guðmundur Andri Thorsson
- Þröstur Ólafsson
- Gunnar Thor Örnólfsson
Komdu í heimsókn
Bókabúð, bókaútgáfa og skrifstofur
- Fiskislóð 39, 101 ReykjavíkSjá á korti
- 575 5600Skrifstofa
- [email protected]
Opnunartími verslunar
- Mán – fös
- 10:00 – 18:00
- Lau
- 11:00 – 17:00
- Sun
- 12:00 – 16:00
Opnunartími skrifstofu
- Mán – fim
- 09:00 – 12:00 og 13:00 – 16:00
- Fös
- 10:00 – 12:00 og 13:00 – 16:00
- Lau – sun
- Lokað
Starfsfólk
Hjá Forlaginu starfa um 40 manns við útgáfu, sölu og í bókabúðinni á Fiskislóð 39.

Alexandra Buhl
Grafískur hönnuður
Graphic designer
[email protected]
Anna Haraldsdóttir
Þjónustufulltrúi
Customer service representative
[email protected]
Árný Daníelsdóttir
Bókhald
Accounting
[email protected]
Ásgerður Heimisdóttir
Sölufulltrúi
Sales
[email protected]
Benedikt Arnar Oddsson
Gjaldkeri
Cashier
[email protected]
Bjarni Guðmarsson
Ritstjóri
Editor
[email protected]
Björn Svanur Víðisson
Framleiðslustjóri
Production manager
[email protected]
Brynjar Halldórsson
Lager
Warehouse
[email protected]
Elín Edda Pálsdóttir
Verkefnastjóri útgáfu
Acquisitions editor
[email protected]
Emilía Ragnarsdóttir
Grafískur hönnuður
Graphic designer
[email protected]
Fanney Benjamínsdóttir
Kynningarstjóri og markaðsfulltrúi
Promotions manager and marketing representative
[email protected]
Guðrún Lára Pétursdóttir
Ritstjóri
Editor
[email protected]
Halla Sigríður Margrétardóttir
Grafískur hönnuður
Graphic designer
[email protected]
Hekla McKenzie
Sölustjóri
Sales director
[email protected]
Héðinn Finnsson
Verslunarstjóri
Store manager
[email protected]
Hólmfríður (Úa) Matthíasdóttir
Útgefandi
Publisher
[email protected]
Hrafnhildur Erla Eiríksdóttir
Bókhald
Accounting
[email protected]
Hulda Helgadóttir
Mannauðsstjóri
Human resources manager
[email protected]
Höskuldur Þór Höskuldsson
Lager
Warehouse
[email protected]
Ingibjörg Helgadóttir
Verkefnastjóri
Project manager
[email protected]
Jakub Stachowiak
Bóksali og lager
Bookseller and warehouse
[email protected]
Jón Heiðar Gunnarsson
Markaðsstjóri
Marketing director
[email protected]
Karólína Thoroddsen
Bóksali
Bookseller

Kolbrún Þóra Eiríksdóttir
Réttindastofa
Foreign rights
[email protected]
Linda Rún Pétursdóttir
Þjónustufulltrúi
Customer service representative
[email protected]
Oddný S. Jónsdóttir
Ritstjóri
Editor
[email protected]
Olga Færseth
Lagerstjóri
Warehouse manager
[email protected]
Ragna Kjartansdóttir
Hljóðmaður
Audio engineer
[email protected]
Sindri Freyr Steinsson
Hljóðmaður og myndbandsframleiðandi
Audio engineer and video producer
[email protected]
Sigríður Ásta Árnadóttir
Ritstjóri
Editor
[email protected]
Sigríður Rögnvaldsdóttir
Ritstjóri
Editor
[email protected]
Sigríður Örlygsdóttir
Fjármálastjóri
Chief financial officer
[email protected]
Sigþrúður Gunnarsdóttir
Framkvæmdastjóri
Chief executive officer
[email protected]
Stella Soffía Jóhannesdóttir
Réttindastofa
Rights director
[email protected]
Vera Knútsdóttir
Ritstjóri
Editor
[email protected]
Æsa Guðrún Bjarnadóttir
Ritstjóri
Editor
[email protected]
Örn Sigurðsson
Ritstjóri ferðakorta
Travel map editor
[email protected]
Handritaskil
Forlagið skoðar öll handrit sem því berast. Sendu handrit ásamt kynningarblaði í tölvupósti á[email protected].
Krefjist efni handrits þess að því sé skilað útprentuðu skal það skilmerkilega merkt eiganda sínum og skilað á skrifstofu Forlagsins. Tilgreina skal þá hvort höfundur muni sækja það aftur að lestri loknum. Farið er með handritaskil til Forlagsins sem trúnaðarmál.
Mat hvers handrits tekur allt að 10–12 vikum og vegna kostnaðar við hvern yfirlestur óskum við eftir því að önnur forlög hafi handritið ekki til skoðunar á sama tíma.
Þeir sem senda inn handrit fá svar en ekki eru skrifaðar umsagnir um handrit. Forlaginu ber ekki skylda til að rökstyðja ákvarðanir útgáfustjóra. Ef handriti er hafnað og ekki er tilgreint þegar það berst að það verði sótt verður því fargað að lestri loknum.
Algengar spurningar
Ég er með handrit. Hvað geri ég?
Þú sendir okkur handritið í viðhengi ásamt stuttri kynningu. Fylla þarf út kynningarblaðið. Athugaðu að ef kynningarblaðið fylgir ekki með, verður handritið þitt ekki lesið. Ekki er nauðsynlegt að skila inn útprentuðum handritum á skrifstofuna nema efnið kalli sérstaklega á slíkt, s.s. myndskreytt verk.
Ég er með hugmynd að bók. Hvað geri ég?
Þú mótar hugmyndina þína eins vel og kostur er og kynnir hana skriflega á einu A4 blaði og sendir okkur. Sendu myndir, hlekki eða annað ítarefni með sé þess þörf. Ekki er tekið við hugmyndum að skáldsögum, þar þarf í öllum tilfellum tilbúið handrit.
Einhver góð ráð áður en ég sendi?
Fáðu yfirlestur og ábendingar frá fleiri en einum lesanda áður en þú sendir inn handrit. Góðar bækur spretta ekki úr einum kolli, þær eru margbrotin samstarfsverkefni þó yfirleitt sé bara eitt höfundarnafn á kilinum. Reyndu að fá fleiri en góðvini þína eða fjölskyldu til að lesa, það getur reynst gríðarlega dýrmætt að fá yfirlestur frá „hlutlausum“ lesanda. Vandaðu stafsetningu og frágang. Búðu þig undir langa bið, þetta tekur allt tíma. Ekki senda nýja gerð handritsins á meðan þú bíður eftir svari.
Af hverju fæ ég ekki fund?
Við skoðum innsent efni og hugmyndir áður en fundir eru boðaðir. Ef hugmyndin er góð eða handritið er gott er það tekið fyrir og rætt á útgáfufundi. Þar er tekin ákvörðun um næstu skref, sem oftar en ekki er fundur höfundar með ritstjóra.
Hvað tekur þetta langan tíma?
Forlagið fær tugi handrita til skoðunar í hverjum mánuði. Yfirlestur þeirra tekur tíma, við miðum við 10–12 vikur. Útgáfuferlið sjálft er síðan mun lengra. Það líða margir mánuðir frá því að handrit er fullklárað þar til bók kemur út, ritstjórnarferli getur tekið 3–4 mánuði og umbrot, hönnun og prentun annað eins. Það er því ekki gott að senda inn handrit að jólabók í júlí. Athugið að ekki er tekið við handritum eða útgáfuhugmyndum á tímabilinu 15. maí til 15. september vegna anna á ritstjórn.
Hvað ræður því hvort bók kemur út?
Innihaldið og möguleikarnir sem við sjáum í hugmyndum hennar, boðskap eða höfundi.
Af hverju hafnið þið handritum?
Fyrir því eru margar ástæður. Handrit eru misjöfn að gæðum, þau geta líkst öðru sem við erum að fást við eða nýbúin að gefa út. Útgáfulistinn er mjög fljótur að fyllast – því miður getum við ekki gefið allt út þó það sé spennandi, fróðlegt og skemmtilegt. Oft eru góðir sprettir í handritum en vantar upp á heildina. Sum þeirra eru mjög illa stafsett og stíluð eða lítt ígrunduð.
Hvers vegna fæ ég ekki ábendingar eða athugasemdir um hvað mætti betur fara?
Okkur gefst einfaldlega ekki tími til slíks, þó við fegin vildum.
