Bókaútgáfa og menningararfur

Útgáfan

Forlagið er alhliða bókaútgáfa og bókaverslun, til húsa að Fiskislóð 39 í Reykjavík. Þar starfar um 40 manna samhentur hópur við að gefa út og selja úrvalsbækur og annað efni fyrir fólk á öllum aldri.

Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39

Forlagið

Forlagið gefur út bækur undir merkjum Forlagsins, Máls og menningar, Vöku-Helgafells, JPV og Iðunnar og rekur einnig metnaðarfulla kortaútgáfu. Hjá Forlaginu koma út ríflega eitt hundrað nýir titlar ár hvert; bækur af öllu tagi og gerðum og á ýmsum tungumálum. Þá kemur Tímarit Máls og menningar út fjórum sinnum á ári.

Forlagið var stofnað árið 2007 og eigandi þess er bókmenntafélagið Mál og menning. Hjá Forlaginu starfa um 40 starfsmenn. Stjórn Forlagsins skipa Halldór Guðmundsson, formaður; Örnólfur Thorsson, varaformaður; Árni Kr. Einarsson, Daníel Helgason og Ragnhildur Helgadóttir.

Árið 2023 setti Forlagið á stofn Reykjavík Literary Agency sem annast réttindasölu á íslenskum bókum til erlendra útgefenda, kvikmyndaframleiðenda og annarra aðila.

Bókabúð Forlagsins og skrifstofur eru til húsa að Fiskislóð 39, á Grandanum í Reykjavík. Þar má finna bækur allra helstu útgefenda landsins – og ekki bara þær nýjustu heldur verulegt magn eldri titla. Á Fiskislóðinni er nægt pláss fyrir allar tegundir bóka og þær fást á kostakjörum árið um kring. Í september er þar haldinn veglegur bókamarkaður.

Nýtt frá Forlaginu

Karfan þín

Valmynd