Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026

Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að dómnefnd hafði rýnt í keppnisgögn var hún sammála um að Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlyti Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026.

Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík, heimabæ hennar, hófust. Í bókinni segir hún sögu sína í samstarfi við verðlaunahöfundinn Þórunni Rakel Gylfadóttur, lýsir síðasta deginum í Grindavík, tilraunum til að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir jörðin skylfi undir fótum hennar, fyrirvaralausum flótta fjölskyldunnar og afleiðingum þess að vera rifin upp með rótum á viðkvæmum aldri og þurfa að fóta sig í nýjum aðstæðum. Didda Flygenring, teiknari og grafískur hönnuður, myndlýsir söguna.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars:

„Textinn er knappur og blátt áfram en einlæg rödd barnsins skín í gegn og gerir lesendum kleift að setja sig í spor Grindvíkinga. Með persónulegum teiknistíl og markvissri litanotkun fangar Didda Flygenring í senn skelfinguna sem fylgdi náttúruhamförunum sem og öryggið og hlýjuna sem ástrík fjölskyldan veitir á erfiðum tímum. Síðasti dagurinn er einstakt verk um þýðingu þess að eiga heimili, tilheyra samfélagi og upplifa öryggi, bók sem vekur samkennd og eykur skilning á málefnum sem varða okkur öll.“

Að Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og Forlagið, sem gefur sigurhandritið út á bók að keppni lokinni. Í dómnefnd sátu Anna Cynthia Leplar, Guðrún Lára Pétursdóttir og Sölvi Sveinsson.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Andri Snær Magnason sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason, einn af höfundum Forlagsins, var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á þjóðhátíðardaginn fyrir skapandi störf í þágu framtíðar. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán einstaklinga heiðursmerki orðunnar við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 17. júní. Hin íslenska fálkaorða er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir. Andri Snær hefur á löngum og farsælum…

Karfan þín

Valmynd