Um bókina
Systa verður himinlifandi þegar ný bangsastelpa á hennar aldri flytur í næsta nágrenni við Bjarnastaðabangsana. Lísa Brá er skemmtileg vinkona, en hún á það til að vera svolítið stjórnsöm. Það er ekki alveg víst að þeim Systu komi alltaf vel saman. Hvernig á að leysa vandamál sem koma upp á milli góðra vina?













