Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Dóttir myndhöggvarans
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 137 | 4.490 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 137 | 4.490 kr. |
Um bókina
Lítil stúlka nálgast tilveruna af varfærni og óttablandinni virðingu þegar hún segir frá lífi sínu á listamannsheimili í Helsinki snemma á 20. öld, lýsir fríum fjölskyldunnar í finnska skerjagarðinum og heimsóknum til sænskra móðurforeldra. Allt gæti þetta átt við æsku höfundarins Tove Jansson þótt hvergi hafi hún sagst vera að fjalla um sjálfa sig.
Aðdáendur Sumarbókarinnar þekkja sögusviðið og umfjöllunarefnin; átök manns og náttúru, leiftrandi ímyndunarafl bernskunnar, leikgleði og listsköpun auk bæði ógnandi skugga og nærandi skjóls sem leynast í samheldinni fjölskyldu.
Tove Jansson er þekkt um allan heim fyrir óviðjafnanlegar sögur sínar um múmínálfana en Dóttir myndhöggvarans var fyrsta bók hennar ætluð fullorðnum lesendum. Hún kom út árið 1964 þegar Tove var fimmtug, vakti mikla athygli og hlaut afburðagóða dóma.
Gerður Kristný íslenskaði og ritaði formála.
























Umsagnir
Engar umsagnir komnar