Ferðalag Cilku

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2022 App 1.790 kr. Setja í körfu
Rafbók 2021 1.990 kr.
spinner
Kilja 2021 397 990 kr.
spinner

Ferðalag Cilku

Útgefandi : JPV

990 kr.1.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2022 App 1.790 kr. Setja í körfu
Rafbók 2021 1.990 kr.
spinner
Kilja 2021 397 990 kr.
spinner

Um bókina

Ferðalag Cilku er áhrifarík örlagasaga stúlku frá Slóvakíu sem aðeins sextán ára gömul er send í útrýmingarbúðirnar í Auschwitz-Birkenau. Árið er 1942 og gyðingum ekki vært í ríki nasista. Í búðunum fær yfirmaður augastað á henni og skipar hana nauðuga í sérstakt hlutverk sem verður til þess að hún lifir af, með ærnum fórnarkostnaði.

Í stríðslok fá eftirlifandi fangar frelsi en Cilka er sökuð um samstarf við kúgarana og send í næstu fangabúðir, gúlagið í Síberíu. Þar er lífið síst mildara og daglega mega tugþúsundir fanga þola þrældóm, hungur og ofbeldi. Dauðinn er sífellt nálægur. En Cilka er sterk og þrátt fyrir allt sem hún hefur gengið í gegnum tekst henni að halda mennsku sinni og reisn, ásamt því að koma öðrum til hjálpar með skynsemi sinni og dýrkeyptri lífsreynslu.

Saga Cilku er byggð á atburðum í lífi konu sem var til í raun og veru. Höfundurinn, Heather Morris, heyrði fyrst af ótrúlegri ævi Cilku hjá Lale Sokolov, manninum sem hún skrifaði fyrstu skáldsögu sína um, metsölubókina Húðflúrarinn í Auschwitz. Ólöf Pétursdóttir þýddi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Berglind Jónsdóttir les.

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning