Um bókina
Flóttinn til skýjanna á sér stað í heimi þar sem rómverska heimsveldið féll aldrei. Árið er 1407 og herir Veldisins svífa um á loftskipum og æða um á járnbrautum í stöðugri útrás. En skyndilegt umsátur um borgina Bushehr dregur dilk á eftir sér. Trinius, rómverskur verkfræðingur, festist í borginni og leitar allra leiða til að flýja. Hann tekur höndum saman við sjóræningjakaftein, Júlíu, og saman vinna þau að hinu nær ómögulega, að breyta skipi Júlíu í loftskip.













