Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Míkadó
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2026 | 174 | 7.890 kr. | ||
| Rafbók | 2026 | - | 4.290 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2026 | 174 | 7.890 kr. | ||
| Rafbók | 2026 | - | 4.290 kr. |
Um bókina
„Líf mitt var eins og að spila míkadó þar sem hver prjónninn var veiddur á fætur öðrum án þess að hrúgan hryndi.“
Fjölskylda ellefu ára stelpu reynir hvað hún getur að liðast ekki í sundur. Dagarnir fara í að sýna heiminum að allt sé í lagi. Á meðan stelpan fetar sig fram hjá gildrum á heimilinu gerast ævintýrin utan þess.
Í skáldsögunni Míkadó segir Gerður Kristný sögu frá Reykjavík níunda áratugarins. Með ísmeygilegri kímni og hnífskörpu innsæi er dregin upp lýsing á heimi sem stundum virðist kæfandi en stundum barmafullur af möguleikum.
Gerður Kristný hefur fyrir löngu skipað sér í hóp fremstu höfunda landsins. Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir skrif sín, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin, tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar.
























Umsagnir
Engar umsagnir komnar