Sumarbókin

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Kilja 2020 160 3.490 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2021 App 990 kr. Setja í körfu

Sumarbókin

990 kr.3.490 kr.

Sumarbókin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2020 1.490 kr.
spinner
Kilja 2020 160 3.490 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2021 App 990 kr. Setja í körfu

Um bókina

Í miðjan hrygginn hafði forstjórinn látið stinga niður stóru skilti með svörtum bókstöfum: Einkalóð. Landganga óheimil. Við förum í land, sagði amman, og var mjög reið. Það kom óttasvipur á Soffíu. Sjáðu nú til, útskýrði amman. Engin sæmilega uppalin manneskja gengur á land í eyju sem aðrir eiga þegar þeir eru ekki heima. En ef þeir setja upp svona skilti þá gerir maður það, því það er hrein ögrun. Auðvitað, sagði Soffía og bætti við mikilvæga þekkingu sína á lífinu.

Sumarbókin er sígild bókmenntaperla sem segir frá Soffíu litlu og ömmu hennar og sumardvöl þeirra á smáeyju undan strönd Finnlands. Þessi tæra og látlausa en djúpvitra frásögn af örheimi eyjunnar, af gróðrinum og dýralífinu, hafinu og veðrinu og heimspekilegum samræðum ömmu og Soffíu hefur heillað lesendur í næstum hálfa öld.

Tove Jansson skrifaði tíu bækur fyrir fullorðna sem allar hafa staðið í skugganum af geysivinsælum sögum hennar um múmínálfana. Sumarbókin er byggð á sumardvölum hennar og fjölskyldu hennar í finnska skerjagarðinum. Hún kemur nú í fyrsta sinn út á íslensku, í afbragðsþýðingu Ísaks Harðarsonar.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 59 mínútur að lengd. Halldóra Geirharðsdóttir les.

Tengdar bækur

3.190 kr.
3.190 kr.
3.190 kr.
mía múmín
3.890 kr.
fyrsta múmínbókin mín bestu vinir
3.890 kr.
2.890 kr.
3.890 kr.
múmínsnáðinn og óskastjarnan
3.690 kr.
2.190 kr.
Minningar múmínpabba
990 kr.1.490 kr.
Muminalfarnir_bok_3
4.290 kr.

INNskráning

Nýskráning