Svartur á leik

Skáldverk

Svartur á leik

eftir Stefán Máni

2012 · 548 bls.

Veldu snið

990 kr.

Til á lager

Um bókina

Hinn margslungni Stebbi psycho, hraustmennið Tóti, hinn dularfulli Brúnó, Dagný hin fagra, Jói faraó og Frostaskjólstvíburarnir Krummi og Klaki – allt eru þetta leikendur í óvæntri og margbrotinni fléttu sem spannar nær tvo áratugi.

Svartur á leik er saga sem markar tímamót í íslenskri skáldsagnaritun. Stefán Máni dregur upp trúverðuga og sannfærandi mynd af undirheimum Reykjavíkur, sem er byggð á umfangsmiklum athugunum. Hraði og spenna eru í fyrirrúmi, lesturinn er sannkölluð rússíbanareið gegnum íslenska glæpasögu síðustu áratuga og engin leið að leggja bókina frá sér fyrr en hún er á enda.

Hér er kominn fyrsti íslenski bókmenntaþrillerinn. Kvikmynd byggð á bókinni var frumsýnd 2. mars 2011 og var bókin þá endurprentuð í kilju. Einnig er bókin fáanleg sem rafbók.

Karfan þín

Valmynd