Alexander Dan Vilhjálmsson

Forlagshöfundur

3 bækur

Alexander Dan Vilhjálmsson

Alexander Dan er fæddur 1988 og býr í Reykjavík. Fyrsta skáldsaga hans, Hrímland, kom út 2014 en með henni skipaði hann sér sess sem einn helsti furðusagnahöfundur landsins af yngri kynslóðinni. Önnur skáldsagan, Vættir, kom út 2018.

Umskrifuð og viðaukin útgáfa Hrímlands kom svo út undir heitinu Shadows of the Short Days hjá einu virtasta fantasíuforlagi heims, Gollancz í Bretlandi, árið 2019 og í kjölfarið hjá Titan Books í Bandaríkjunum. Alexander hefur eftir það verið að hasla sér völl í hinum enskumælandi heimi og árið 2022 kom framhaldsbókin The Storm Beneath a Midnight Sun út bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Alexander gaf um tíma út tímaritið Furðusögur sem var fyrsta íslenska tímaritið helgað vísindaskáldskap, hryllings- og fantasíubókmenntum. Hann semur auk þess söngtexta og þenur raddböndin í svartmálmshljómsveitinni Carpe Noctem.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.7.000 kr.+

Sýnir 1–3 af 3 bókum

Undir 7.000 kr.
Vættir – Alexander Dan Vilhjálmsson
  • Innbundin

Vættir

Alexander Dan Vilhjálmsson

1.690 kr.

Karfan þín

Valmynd