Bergur Ebbi

Forlagshöfundur

5 bækur

Bergur Ebbi

Bergur Ebbi er fæddur árið 1981. Hann varð stúdent frá MH, lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands og stundaði nám í framtíðarfræðum í Toronto í Kanada. Bergur Ebbi er fjölhæfur listamaður og skemmtikraftur, hefur meðal annars fengist við tónlist, þáttagerð og ritstörf og hlotið verðlaun fyrir. Með skrifum sínum, uppistandi og fyrirlestrum hefur hann skipað sér í hóp helstu samfélagsgreinenda þjóðarinnar.

Fyrsta bók Bergs Ebba var ljóðabókin Tími hnyttninnar er liðinn sem kom út árið 2010 en fyrir handrit hennar hlaut hann Nýræktarstyrk Bókmenntasjóðs. Hann hefur sent frá sér fleiri ljóð en einnig skrifað geysivinsælar bækur þar sem hann rýnir af snerpu og eldmóði í samtímann; upplýsingaflæði, samfélagsmiðla, tækninýjungar og fjölmargt annað sem einkennir nútímasamfélag og hefur áhrif á sjálfsmynd fólks og viðhorf til umheimsins. Þetta eru bækurnar Stofuhiti sem kom út 2017, Skjáskot frá 2019 og Öld ímyndunaraflsins frá 2026.

Auk bókanna hefur Bergur Ebbi skrifað fjölda beittra og skemmtilegra pistla í blöð og samið handrit að leiknu efni. Þá hefur hann starfað sem grínisti með uppistandshópnum Mið-Íslandi, haldið úti vinsælum hlaðvarpsþáttum og samið lög og texta

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.5.000 kr.+

Sýnir 1–5 af 5 bókum

Undir 5.000 kr.
Skjáskot – Bergur Ebbi
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Skjáskot

Bergur Ebbi

frá 990 kr.

Stofuhiti – Bergur Ebbi
  • Mjúk spjöld
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Stofuhiti

Bergur Ebbi

frá 990 kr.

Karfan þín

Valmynd