Hallgrímur Helgason

Forlagshöfundur

24 bækur

Hallgrímur Helgason

Hallgrímur Helgason er þúsundþjalasmiður í íslensku menningarlífi og hefur komið við í ýmsum kimum bókmenntanna auk þess að stunda myndlist og samfélagsumræðu. Hann lærði myndlist í Reykjavík og München og hefur frá árinu 1982 starfað sjálfstætt sem myndlistarmaður og rithöfundur.
Fyrsta skáldsaga Hallgríms, Hella, kom út árið 1990 og síðan hefur hann sent frá sér fjölda skáldsagna auk leikrita, ljóðabóka og þýðinga. Skáldsögur hans hafa komið víða út erlendis, verið kvikmyndaðar og settar á svið. Magnaðar skáldsögur Hallgríms um Gest Eilífsson á Segulfirði; Sextíu kíló af sólskini, Sextíu kíló af kjaftshöggum og Sextíu kíló af sunnudögum, hittu lesendur í hjartastað, bæði hérlendis og víða um heim. Að loknum rómuðum þríleik sínum um síldarævintýrið sneri Hallgrímur aftur í nútímann haustið 2026 í nýstárlegri skáldsögu: Enginn deyr í IKEA.
Hallgrímur hefur hlotið ófáar viðurkenningar á ferli sínum sem rithöfundur. Árið 2021 var hann sæmdur Heiðursorðu Frakka fyrir framlag sitt til lista og bókmennta, hefur þrisvar verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og bæði fengið Íslensku þýðingarverðlaunin og Íslensku hljóðbókaverðlaunin. Þá hefur hann hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin þrisvar sinnum, fyrir Höfund Íslands 2001, Sextíu kíló af sólskini 2018 og Sextíu kíló af kjaftshöggum 2021.

Sía niðurstöður

Flokkar
Snið
Verð
0 kr.13.000 kr.+

Sýnir 1–24 af 24 bókum

Koma jól? – Hallgrímur Helgason og Rán Flygenring
  • Mjúk spjöld

Koma jól?

Hallgrímur Helgason og Rán Flygenring

3.890 kr.

Saga Íslands II – Björn Th. Björnsson, Gunnar Karlsson, Hallgrímur Helgason, Jónas Kristjánsson og Magnús Stefánsson
  • Innbundin

Saga Íslands II

Björn Th. Björnsson, Gunnar Karlsson, Hallgrímur Helgason, Jónas Kristjánsson og Magnús Stefánsson

3.190 kr.

Lukka – Hallgrímur Helgason
  • Mjúk spjöld

Lukka

Hallgrímur Helgason

3.490 kr.

Hella – Hallgrímur Helgason
  • Rafbók

Hella

Hallgrímur Helgason

990 kr.

Rokland – Hallgrímur Helgason
  • Innbundin
  • Rafbók

Rokland

Hallgrímur Helgason

frá 990 kr.

Karfan þín

Valmynd