Lilja Sigurðardóttir

Forlagshöfundur

9 bækur

Lilja Sigurðardóttir

Lilja Sigurðardóttir er fædd árið 1972. Hún varð stúdent frá MH, tók einkaritarapróf í Englandi og síðar BA-próf í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem sérfræðingur á sviði menntamála og ritstýrt fagefni fyrir leikskóla en hefur undanfarið einbeitt sér að bóka- og handritaskrifum.

Fyrsta bók Lilju, glæpasagan Spor, kom út árið 2009 og hlaut góðar viðtökur; ári síðar kom næsta saga en síðan varð nokkurra ára hlé á bókaskrifum. Árið 2015 kom út fyrsta sagan í spennuþríleik sem kom Lilju rækilega á framfæri hér heima og erlendis. Þetta var Gildran og næstu tvö ár fylgdu Netið og Búrið. Þríleikurinn er æsispennandi, einkennist af hröðum og liprum stíl, skemmtilegri persónusköpun og góðri fléttu. Bækurnar féllu vel í kramið hjá lesendum og hafa nú verið þýddar og gefnar út í mörgum löndum. Sömuleiðis hefur kvikmyndaréttur verið seldur.

Lilja hefur haldið áfram að skrifa spennusögur en auk þess unnið mikið að handritaskrifum fyrir sjónvarpsþætti og samið leikrit. Verk hennar Stóru börnin var sviðsett af leikfélaginu Lab-Loki og hlaut Grímuverðlaunin sem leikrit ársins 2014. Spennusögurnar hafa einnig aflað Lilju verðlauna og viðurkenninga: árið 2018 hlaut Gildran t.d. tilnefningu til Gullna rýtingsins (CWA International Dagger), virtra verðlauna samtaka breskra glæpasagnahöfunda, og fyrir sögurnar Búrið og Svik hlaut Lilja íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann og tilnefningu til norræna Glerlykilsins tvö ár í röð.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.3.000 kr.

Sýnir 1–9 af 9 bókum

Undir 3.000 kr.
Náhvít jörð – Lilja Sigurðardóttir
  • Innbundin
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Náhvít jörð

Lilja Sigurðardóttir

frá 1.990 kr.

Blóðrauður sjór – Lilja Sigurðardóttir
  • Innbundin
  • Mjúk spjöld
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Blóðrauður sjór

Lilja Sigurðardóttir

frá 1.490 kr.

Helköld sól – Lilja Sigurðardóttir
  • Innbundin
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Helköld sól

Lilja Sigurðardóttir

frá 990 kr.

Búrið – Lilja Sigurðardóttir
  • Innbundin
  • Mjúk spjöld
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Búrið

Lilja Sigurðardóttir

frá 990 kr.

Netið – Lilja Sigurðardóttir
  • Innbundin
  • Kilja
  • Mjúk spjöld
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Netið

Lilja Sigurðardóttir

frá 990 kr.

Gildran – Lilja Sigurðardóttir
  • Innbundin
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Gildran

Lilja Sigurðardóttir

frá 990 kr.

Svik – Lilja Sigurðardóttir
  • Innbundin
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Svik

Lilja Sigurðardóttir

frá 990 kr.

Fyrirgefning – Lilja Sigurðardóttir
  • Innbundin
  • Kilja
  • Rafbók

Fyrirgefning

Lilja Sigurðardóttir

frá 990 kr.

Spor – Lilja Sigurðardóttir
  • Rafbók

Spor

Lilja Sigurðardóttir

1.490 kr.

Karfan þín

Valmynd