Sigurbjörg Þrastardóttir

Forlagshöfundur

7 bækur

Sigurbjörg Þrastardóttir

Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd 27. ágúst 1973 á Akranesi. Hún lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 1997 og prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla 1998.

Fyrsta ljóðabók Sigurbjargar, Blálogaland, kom út árið 1999. Ári síðar kom út ljóðabókin Hnattflug sem hlaut góðan meðbyr og var valin besta ljóðabók vertíðarinnar af starfsfólki bókaverslana. Í bókinni er ferðast um borgir, götur, fjöll, höf og aðra raunverulega staði í myndrænum ljóðum. Í kjölfarið hafa fylgt örsagnasöfn, fleiri ljóðabækur og ýmis önnur skáldverk, ásamt textum í samvinnuverk. Fyrir skáldsöguna Sólar sögu hlaut Sigurbjörg Bókmenntaverðlaun Reykjavíkurborgar sem kennd eru við Tómas Guðmundsson árið 2002 og ljóðsagan Blysfarir var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2009.

Sigurbjörg hefur komið fram á ljóðahátíðum í ýmsum löndum og fjallað hefur verið um ljóðagerð hennar í króatísku, hollensku og dönsku bókmenntapressunni svo nokkuð sé nefnt. Á Ítalíu hlaut hún árið 2021 samtímaljóðlistarverðlaunin Premio Ciampi, sem árlega eru veitt einu ítölsku skáldi og einu erlendu. Við það tækifæri var gefið út tvímála ljóðasafnið Cicatrici, í þýðingu Silviu Cosimini.

Af leikverkum má nefna Þrjár Maríur á Litla sviði Borgarleikhússins, uppistandið Maður og kona: Egglos hjá LA og leikgerð Gunnlaðar sögu eftir Svövu Jakobsdóttur í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Styttri leikþættir hafa verið sýndir í Kaupmannahöfn og Lundúnum.

Ljósmynd af höfundi: Árni Sæberg

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.3.000 kr.

Sýnir 1–7 af 7 bókum

Undir 3.000 kr.
Stekk – Sigurbjörg Þrastardóttir
  • Innbundin
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Stekk

Sigurbjörg Þrastardóttir

frá 990 kr.

Brúður – Sigurbjörg Þrastardóttir
  • Mjúk spjöld

Brúður

Sigurbjörg Þrastardóttir

2.325 kr.

Sólar saga – Sigurbjörg Þrastardóttir
  • Innbundin

Sólar saga

Sigurbjörg Þrastardóttir

2.065 kr.

Hnattflug – Sigurbjörg Þrastardóttir
  • Mjúk spjöld

Hnattflug

Sigurbjörg Þrastardóttir

1.955 kr.

Blysfarir – Sigurbjörg Þrastardóttir
  • Rafbók

Blysfarir

Sigurbjörg Þrastardóttir

990 kr.

Karfan þín

Valmynd