
- Mjúk spjöld
Raddir barnabókanna
Silja Aðalsteinsdóttir
6.290 kr.

Forlagshöfundur
15 bækur
Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur, þýðandi og ritstjóri fæddist 3. október 1943 og varð stúdent frá MR 1963. Hún lauk BA-próf í íslensku og ensku frá Háskóla Íslands 1968, cand. mag.-próf í íslenskum bókmenntum frá HÍ 1974 og námi í uppeldis- og kennslufræði frá HÍ 1982. Silja starfaði sem stundakennari í íslenskum bókmenntum við HÍ, blaðamaður og gagnrýnandi í lausamennsku. Hún var ritstjóri Tímarits Máls og menningar 1982–1987 og 2004–2008, Þjóðviljans 1989, umsjónarmaður menningarefnis á DV 1996–2003 og ritstjóri á Forlaginu frá 2008.
Meðal helstu ritverka Silju eru barnabókmenntasagan Íslenskar barnabækur 1780–1979 (1981) og ævisögurnar Skáldið sem sólin kyssti, ævisaga Guðmundar Böðvarssonar (1994), Í aðalhlutverki Inga Laxness – Endurminningar Ingibjargar Einarsdóttur (1987) og Bubbi um Bubba Morthens (1990). Hún skrifaði um ljóðagerð frá 1880–2000 í Íslenska bókmenntasögu III-V (1996–2006).
Fyrir Skáldið sem sólin kyssti hlaut Silja Íslensku bókmenntaverðlaunin og líka, ásamt öðrum, fyrir bókina Kjarval (2005).
Silja fékk verðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur 1978 fyrir þýðingu sína á skáldsögunni Sautjánda sumar Patricks eftir K.M. Peyton og Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingu sína á Wuthering Heights eftir Emily Brontë (2006). Meðal margra annarra þýðinga Silju má nefna Hroka og hleypidóma eftir Jane Austen (1988), Lífið að leysa eftir Alice Munro (2014) og Grimms ævintýri fyrir unga og gamla (2015); tvær þær síðarnefndu voru tilnefndar til Íslensku þýðingarverðlaunanna.
Silja hlaut viðurkenningu Íslandsdeildar IBBY fyrir fræðslustörf á sviði barnabókmennta 2001 og fálkaorðuna fyrir framlag sitt til íslenskra bókmennta árið 2015.
Sýnir 1–15 af 15 bókum

Silja Aðalsteinsdóttir
6.290 kr.

Jón Árnason og Silja Aðalsteinsdóttir
2.690 kr.

Silja Aðalsteinsdóttir
frá 990 kr.

Jón Árnason og Silja Aðalsteinsdóttir
3.290 kr.

Jón Árnason og Silja Aðalsteinsdóttir
frá 990 kr.

Silja Aðalsteinsdóttir
2.590 kr.

Davíð Stefánsson og Silja Aðalsteinsdóttir
5.190 kr.

Jóhannes úr Kötlum og Silja Aðalsteinsdóttir
3.930 kr.

Halldór Baldursson og Silja Aðalsteinsdóttir
1.690 kr.

Dagný Kristjánsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Margrét Tryggvadóttir, Matthías Viðar Sæmundsson og Silja Aðalsteinsdóttir
5.835 kr.

Dagný Kristjánsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Halldór Guðmundsson, Jón Yngvi Jóhannsson og Silja Aðalsteinsdóttir
5.835 kr.

Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, Ármann Jakobsson, Brynhildur Þórarinsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Silja Aðalsteinsdóttir
2.545 kr.

Hjálmar Sveinsson og Silja Aðalsteinsdóttir
3.880 kr.

Guðmundur Böðvarsson og Silja Aðalsteinsdóttir
1.750 kr.

Silja Aðalsteinsdóttir
3.950 kr.