
0 bækur
Þórunn Rakel Gylfadóttir
Þórunn Rakel Gylfadóttir (f. 1968) er rithöfundur og námsgagnahöfundur. Hún stundar meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands en er að auki með kennararéttindi frá sama skóla og býr yfir margra ára reynslu af kennslu í ýmsum námsgreinum á bæði grunn- og framhaldsskólastigi. Þórunn hefur jafnframt leitt fjölda umfangsmikilla verkefna sem lúta að skapandi íslenskukennslu, ritlist og bókmenntum.
Þórunn hefur hlotið margs konar viðurkenninga fyrir verk sín. Fyrir sína fyrstu bók, ungmennasöguna Akam, ég og Annika, voru henni veitt Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2021 en hún var jafnframt tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Fyrir Síðasta daginn hlutu Þórunn og meðhöfundar hennar, Matthildur Yrsa Sigurðardóttir og Didda Flygenring, Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026.
Engar bækur fundust
Undir 3.000 kr.Engar bækur passa við síurnar.
Hreinsa síur