Dagur í júní
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 279 | 4.490 kr. | ||
| Rafbók | 2026 | 2.990 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 279 | 4.490 kr. | ||
| Rafbók | 2026 | 2.990 kr. |
Um bókina
Vidar er kennari og lentur í öngstræti í lífinu. Hann hefur verið sendur í leyfi sakaður um brot í starfi og ver dögunum í einsemd. Þegar hann finnur gamalt símanúmer sem áður tilheyrði sumarhúsi fjölskyldunnar ákveður hann að hringja – og löngu látinn faðir hans svarar, dag einn í fortíðinni.
Þetta er óskiljanlegt. Vidar hringir aftur. Og aftur. Alltaf er sami fortíðardagurinn í sumarhúsinu og hann talar við foreldra sína, systur og sjálfan sig átta ára. Það er eitthvað við þennan dag sem hann verður að fá að vita og í gegnum símtölin kortleggur hann hverja stund þar til hann rekst á vegg; það er eyða í deginum, svarthol. En um leið sækir nútíminn að: Getur verið að hann hafi beitt barn ofbeldi? Og af hverju er líka eyða í minni hans í tengslum við atvikið í skólanum?
Dagur í júní er einstaklega mögnuð og grípandi saga um það sem mótar fólk í barnæsku – átakanleg frásögn um áföll og ástleysi. Sögur Alex Schulmans um börn og brotnar fjölskyldur hafa farið víða og ein þeirra, skáldsagan Eftir lifendurnir, kom út á íslensku árið 2021.













Umsagnir
Engar umsagnir komnar