DRÓN

Skáldverk

DRÓN

Halldór Armand

Veldu snið

3.190 kr.

Til á lager

  • „Það eru rosalega miklar pælingar í þessari bók og mér finnst eins og [Halldór] sé að reyna að vera á öldufaldi nútímans og alveg inn í framtíðina … það eru ekki margir sem fást eins við nútímann … mjög hugmyndaleg og heimspekileg saga … hrikalega flott!“

    Kiljan · Egill Helgason

Um bókina

Þegar líkami Heiðrúnar Sólnes, efnilegustu knattspyrnukonu landsins, virðist geta spáð fyrir um dularfullar árásir dróna víða um heim óttast hún að hún sé að missa vitið. Angistin breytist í algjöran hrylling þegar Ísland verður fyrir árás.

Árásirnar eru þó aðeins eitt af mörgum vandamálum sem þessi viðkvæmi sumarstarfsmaður Reykjavíkurborgar stendur frammi fyrir; faðir hennar óttast að Kötlugos leggi samfélagið á hliðina, neyðarlegt myndband á netinu gæti kollvarpað framtíð hennar og í þokkabót er hún skotin í flokksstjóranum sem reykir mentólsígarettur og elskar verslunarmiðstöðvar.

DRÓN er glæsilega skrifuð og óvenjuleg skáldsaga, stútfull af óstöðvandi hugmyndaflugi, ferskum húmor og pælingum um tækni og mennsku, sannleika og firringu, en um leið þroskasaga unglings sem vill ekki lengur lúta fjarstýringu annarra.

 

Karfan þín

Valmynd